Föstudagur - 14.8 2009 - 16:29 - Ummæli ()

Birgitta og Þór styðja Margréti. Sáttanefndin gafst upp

borgarahreyfing-austurvelli.jpgBirgitta Jónsdóttir og Þór Saari, þingmenn Borgarahreyfingarinnar, útskýra í stuðningsyfirlýsingu við Margréti Tryggvadóttur þingmann hreyfingarinnar í dag tildrög þess að hún lýsti í tölvupósti áhyggjum vegna geðheilsu Þráins Bertelssonar, sem hefur sagt sig úr þingflokki Borgarahreyfingarinnar vegna málsins.

Alger upplausn ríkir innan hreyfingarinnar. Þrír stjórnarmenn hennar hafa sagt af sér, Herbert Sveinbjörnsson, formaður og þeir Valgeir Skagfjörð varaþingmaður og Sigurður H. Sigurðsson.

Þau Birgitta og Þór segja upphaflegar áhyggur komnar frá ónefndum manni „sem er vel inn í málum Borgarahreyfingarinnar og þingmanna hennar og sem einnig er sálfræðimenntaður með mikla reynslu“ og segja „af og frá að Margrét stundi einhverja rógsherferð gegn Þráni Bertelssyni eða að henni gangi eitthvað illt til.“

Þá hefur Sáttanefnd Borgarahreyfingarinnar sent frá sér yfirlýsingu þar sem nefndin segist ekki treysta sér „til þess að leysa persónuleg ágreiningsefni en mun halda áfram að vinna að sáttum innan hreyfingarinnar.“

Yfirlýsingarnar, sem eru eftirfarandi, birtust á vef Borgarahreyfingarinnar í dag:

Yfirlýsing Birgittu Jónsdóttur og Þórs Saari
vegna umfjöllunar fjölmiðla um þinghóp Borgarahreyfingarinnar

Vegna umfjöllunar fjölmiðla um þinghóp Borgarahreyfingarinnar og bréf Margrétar Tryggvadóttur til stjórnar hreyfingarinnar finnst okkur undirrituðum úr þinghópinum tilefni til árétta eftirfarandi.
Haft var samband við Margréti af manni sem er vel inn í málum Borgarahreyfingarinnar og þingmanna hennar og sem einnig er sálfræðimenntaður með mikla reynslu.  Lýsti hann áhyggjum sínum við Margréti vegna yfirlýsinga og aðgerða samþingmanns okkar Þráins Bertelssonar. Í framhaldinu hafði Margrét samband við fyrsta varaþingmann Borgarahreyfingarinnar í kjördæmi Þráins sem er einnig í stjórn hreyfingarinnar til að fá lánaða dómgreind og leita ráða.  Fyrir slysni fór póstur Margrétar á alla stjórnina. Hvorugar hafa sýnt neina tilburði til að sverta mannorð Þráins fyrr né síðar.
Margrét hafði þegar samband við stjórnina og bað hana fyrir trúnað með erindið. Hins vegar kaus einhver eða einhverjir að gera málið tortryggilegt og opinbert og með því skaða Borgarahreyfinguna og aðra hlutaðeigandi. Margrét hafði áður sent Þráni afsökunarbréf.
Undir eðlilegum kringumstæðum hefði Margrét lýst áhyggjum sínum við stjórn hreyfingarinnar sem hefði haldið fullum trúnaði um það. Sundurlyndi innan stjórnarinnar hefur hins vegar valdið því að mál þetta er orðið opinbert og er það miður.
Það er einfaldlega af og frá að Margrét stundi einhverja rógsherferð gegn Þráni Bertelssyni eða að henni gangi eitthvað illt til og við sem þekkjum hana vitum að vart er að finna heiðarlegri, heilsteyptari og hugulsamari manneskju en kæran félaga okkar Margréti Tryggvadóttur.

Birgitta Jónsdóttir
Þór Saari“

Yfirlýsing Sáttanefndar Borgarahreyfingarinnar

Sáttanefnd Borgarahreyfingarinnar, sem kjörin var á félagsfundi 6. ágúst, hefur á liðinni viku átt fundi með öllum kjörnum fulltrúum borgarahreyfingarinnar um þá samstarfsörðuleika sem einkennt hafa starf hreyfingarinnar undanfarnar vikur.

Allir aðilar voru tilbúnir að vinna með okkur að lausn mála en eins og ljóst er orðið var ágreiningurinn þarna of djúpstæður og persónulegur til þess að sætta alla aðila.

Það er ljóst að mörg ágreiningsefnin stafa af skorti á skýrum lögum og verklagsreglum þessarar ungu hreyfingar.

Sáttanefndin treystir sér ekki til þess að leysa persónuleg ágreiningsefni en mun halda áfram að vinna að sáttum innan hreyfingarinnar.

Sáttarnefndin vonast til þess að friður ríki um þá mikilvægu vinnu sem er framundan við undirbúning landsfundar sem á meðal annars að móta lög og verklagsreglur hreyfingarinnar.

Sáttanefndin harmar að sjá á eftir því góða fólki sem nú hefur sagt sig úr hreyfingunni en hvetur það, og þá sem eftir eru í hreyfingunni að einbeita sér að framgangi þeirra stefnumála sem við urðum ásátt um við stofnun Borgarahreyfingarinnar.“

Þá hefur Guðmundur Andri Skúlason, varamaður í stjórn Borgarahreyfingarinnar, sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu vegna málsins:

Vegna yfirlýsingar Þórs Saari og Birgittu Jónsdóttur er rétt að eftirfarandi komi fram.

Stjórn Borgarahreyfingarinnar hefur að mínu viti hvorki brotið trúnað gagnvart einstaklingum né málefnum. Undirritaður vísar öllum slíkum ásökunum á bug og biður höfunda þess hugarburðar að rökstyðja slíkt telji þeir sig vita betur.

Undirritaður hafði samband við Margréti Tryggvadóttur um leið og honum barst téður einkapóstur og bað hana að hafa tafarlaust samband við Þráinn Bertelsson og biðjast afsökunar. Margrét neitaði hins vegar að hafa samband við Þráinn á þeirri forsendu að Þráinn hefði ekki fengið bréfið.

Hún neitaði einnig að verða við þessari beiðni þegar Lilja Skaftadóttir síðar hringdi í sömu erindagjörðum.

Það er því einfaldlega rangt að Margrét hafi sent Þráni afsökunarbréf áður en Þráni var tilkynnt um bréfið, þó henni hafi verið gefinn ríflegur tími til að hugsa hið rétta í stöðunni.

Það eru skiptar skoðanir innan stjórnar í flestum málum og sé svo þá eru málin rædd í þeim tilgangi að finna sameiginlegan flöt á. Stjórnarmenn hafa hingað til skilið sáttir á fundum sínum og unað niðurstöðu þeirra. Svo var einnig í þessu máli.

Það er því af og frá að kenna sundurlyndi stjórnar um hvernig þetta mál hefur rýrt trúverðugleika og traust Borgarahreyfingarinnar.

Það að fólk innan stjórnar hafi sýnt þann manndóm að láta Þráinn vita um téð bréf ber að vott um heiðarleika.

Það að aðilar innan stjórnar hafi látið Margréti vita fyrir og beðið hana að hafa samband við Þráin ber vott um vilja til sátta.

Það að þrír þingmenn Borgarahreyfingarinnar grípi til ósanninda til varnar eigin skinni í þessu máli ber að mínu viti vott um dómgreindarbrest.

Guðmundur Andri Skúlason
Varamaður í stjórn Borgarahreyfingarinnar“

Varamaður í stjórn: Margrét segi af sér þingmennsku

Þá hefur Sævar Finnbogason, varamaður í stjórn Borgarahreyfingarinnar, sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu þar sem hann segist afþakka að verða aðalmaður í stjórninni ef ekkert breytist á málefnum hreyfingarinnar um helgina:

„Hér er bréf það sem ég sendi sáttanefnd BH og stjórn í dag vegna stöðu mála

Heilir og sælir félagar.
Þar sem nú stefnir í að ég sé að verða aðalmaður í stjór finn ég mig knúinn til að segja skýrt frá afstöðu minni.
Nú er svo komið að bréfið margnefnda er lekið út  og skaðinn er skeður. Að mínu mati er nafn og orðspor Borgarahreyfingarinnar stórlega skaddað eftir þetta. Ég hef ákveðið að láta helgina líða og sjá hvað gerist, en frá mínum bæjardyrum séð verður bréfritari að axla ábyrgð á því og segja af sé þingmennsku.

Tvennt vakir fyrir mér í þessu, annarsvegar hagsmunir hreyfingarinnar sem mér þykir vænt um og framtíðarmöguleikar hennar og virðing mín fyrir mínu eigin mannorði. Ég er ekki í neinum vafa um að orðspor hreyfingarinnar sem heiðarlegs boðbera nýrra vinnubragða og lýðræðis í landinu hafi beðið hnekki til framtíðar, það hvort nokkuð af því orðspori loði við hana áfram veltur á viðbrögðum okkar við þessu máli.

Það er alveg ljóst af öllum málflutningi og stefnu okkar að við getum ekki látið kjurt liggja. Án þess ég fari nánar út í innihaldið kann vel að vera að bréfið margnefnda sem berast átti á varamann Þráins sé skrifað af ást og umhyggju fyrir heilsu hans og kannski eru það skýringar sem væru látnar duga í saumaklúbbi eða í heita pottinum á milli vina en þær eru með öllu óásættanlegar í stjórnmálum. Því mun ég afþakka að verða aðalmaður í stjórn eftir helgi ef ekkert breytist og einnig segja af mér sem varamaður.

Kveðjur
Sævar Finnbogason“


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar