eyjan.is

Þriðjudagur 18.08.2009 - 07:54 - Ummæli ()

Magnús Kristinsson fær tugi milljarða skuldir við skilanefnd Landsbankans afskrifaðar

magnuskristinsson.jpg(Uppfært) Útgerðarmaðurinn Magnús Kristinsson hefur samið við skilanefnd Landsbankans um að stór hluti 50 milljarða króna skuldar hans við Landsbankann verði afskrifaður. Hann mun þurfa að greiða þrotabúi gamla Landsbankans það litla sem hann var persónulega ábyrgur fyrir, samkvæmt heimildum DV í dag.

Að sögn blaðsins er hluti skuldanna tilkominn vegna kaupa Magnúsar á Toyota-umboðinu fyrir fjórum árum. Magnús var hluthafi í Landsbankanum við bankahrunið í haust.

Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi Skilanefndar Landsbankans, neitar staðfastlega frétt DV. „Það er alveg af og frá að lán til Magnúsar Kristinssonar, útgerðarmanns í Vestmannaeyjum, hafi verið afskrifuð. Hvorki lán til hans né nokkurra félaga á hans vegum hafa verið afskrifuð. Við munum fyrst ganga að öllum þeim veðum sem liggja lánunum til grundvallar,“ segirPáll.

DV segist hafa heimildir fyrir því að Magnús hafi samið við skilanefnd Landsbankans um að stór hluti af tæplega 50 milljarða króna skuldum eignarhaldsfélaga hans verði afskrifaður, en nákvæmar upplýsingar um upphæðir afskriftanna liggi hins vegar ekki fyrir.

Skilanefndin muni ekki leysa til sín þann kvóta sem Magnús á. Magnús hafi ekki verið í persónulegum ábyrgðum fyrir langmestum hluta þeirra lána sem verið sé að afskrifa.

DV segir Magnús hins vegar þurfa að standa skil á því sem hann er persónulega ábyrgur fyrir.

DV nefnir í frétt sinni að Magnús hafi verið einna helst þekktur sem annar af eigendum fjárfestingafélagsins Gnúps sem varð gjaldþrota í árslok 2007. Blaðið telur fall Gnúps marka upphafið að íslenska efnahagshruninu en félagið var fyrsta stóra fjárfestingafélagið til að verða gjaldþrota.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is