Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi 18 verður opnuð að nýju á Menningarnótt. Kaffihúsið Súfistinn, sem þar var í mörg ár, snýr einnig aftur.
Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að eigendur verslunarinnar verða annars vegar Bókmenntafélagið Mál og menning og hins vegar eignarhaldsfélagið Kaupangur ehf í Kópavogi sem á húsið. Mun hvor aðili eiga helmingshlut. Ekkert verður úr því að verslunin Iða í Lækjargötu komi að rekstrinum.
Kaupangur keypti húsið við Laugaveg af Bókmenntafélaginu haustið 2007. Þá var Penninn búinn að kaupa rekstur bókabúðarinnar. Þegar Kaupangur vildi hækka leiguna hjá Pennanum fyrr á þessu ári brast grundvöllur fyrir áframhaldandi veru verslunarinnar á staðnum. Hún hefur nú verið flutt í hús Spron við Skólavörðustíg og er þar rekinn undir nafni bókaverslunar Eymundssonar. Nafnið ‘Bókabúð Máls og menningar’ hefur verið selt Bókmenntafélaginu.
Kaupangur hefur oft verið í fréttum undanfarin misseri vegna umdeildra fasteignaviðskipta og framkvæmdaáforma. Félagið átti um tíma gömlu timburhúsin við Laugaveg 4-6 og ætlaði að rífa þau og reisa þar stórt miðbæjarhótel. Það vakti mikið uppnám meðal húsverndarfólks og leiddi til harðvítugra deilna í borgarstjórn. Í ársbyrjun 2008 keypti Reykjavíkurborg húsin af félaginu fyrir 550 milljónir króna.
Áform Kaupangs um að byggja stærsta skýjakljúf Íslands á Glaðheimasvæðinu í Kópavogi voru einnig umdeild og varð ekkert af þeim.
Eigendur félagsins eru Jóhannes Sigurðsson og Bjarki Júlíusson. Þeir eru gjarnan kallaðir ‘fasteignabraskarar’ í deilugreinum á blogginu.
Árni Einarsson fer fyrir Bókmenntafélagi Máls og menningar sem er sjálfseignarstofnun. Hann stundar hótelrekstur í miðbænum og var áður framkvæmdastjóri Máls og menningar og um tíma forstjóri Eddu. Bókmenntafélagið var stofnað á fjórða áratugnum og liggja rætur þess í hreyfingu íslenskra sósíalista.
Um samstarf Bókmenntafélags Máls og menningar og Kaupangurs, sósíalista og kapítalista, um rekstur bókabúðar munu vafalaust einhverjir nota enska hugtakið ‘Strange Bedfellows’ eða ’skrýtnir rekkjunautar’.
