Jón Sigurðsson, fyrrum forstjóri Stoða sem áður hét FL Group, er enn á ofurlaunum hjá félaginu þótt það hafi komist í þrot fyrr á árinu og sé nú í meirihlutaeigu ríkisfyrirtækja. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Eiríkur Elís Þorláksson hæstaréttarlögmaður, sem er formaður nýrrar stjórnar Stoða, vildi ekkert segja við blaðið um launakjör Jóns sem nú gegnir starfi framkvæmdastjóra hjá Stoðum í höndum nýju eigendanna.
Þá náði blaðið ekki í Jón sjálfan í gær. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er unnið að því að semja upp á nýtt við Jón um starfskjörin og þá á allt öðrum og lágstemmdari nótum en í samningi Jóns við fyrri eigendur.
Tíföld laun forsætisráðherra – 10 milljónir á mánuði
Samkvæmt tekjublaði Mannlífs námu tekjur Jóns Sigurðssonar 9,4 milljónum króna á mánuði í fyrra. Það eru um það bil tíu sinnum hærri laun en forsætisráðherra hefur um þessar mundir. Eins og kunnugt er hafa ríkisstjórnarflokkarnir þá stefnu að enginn starfsmaður stofnana og félaga í meirihlutaeigu ríkisins hafi hærri laun en forsætisráðherrans.
Við nauðasamninga Stoða við kröfuhafa félagsins var hlutafé fyrri eigenda afskrifað og eignuðust gamli Glitnir um þriðjungshlut og NBI – eða Nýi-Landsbankinn – um fjórðungshlut í Stoðum. Þegar Stoðir fengu heimild til að leita nauðasamninga í apríl námu skuldir félagsins um 280 milljörðum króna en eignir um 80 milljörðum. Helstu eignir Stoða í dag eru Tryggingamiðstöðin og stór hluti í evrópska drykkjavörurisanum Refresco sem er með höfuðstöðvar í Hollandi.