Fimmtudagur - 27.8 2009 - 08:50 - Ummæli ()

Jón Ásgeir: Þrír útlendingar lofa að koma með 16 milljarða í Haga. Kaupmáli afturkallaður

jonasgeir31.jpgJón Ásgeir Jóhannesson, aðaleigandi Haga, segir að félag í eigu þriggja fjárfesta, sem hann vill ekki nafngreina, hafi skrifað undir viljayfirlýsingu um að koma með nýtt hlutabréf að andvirði 75 milljónir punda, um 16 milljarða íslenskra króna, inn í eignarhaldsfélag Haga, 1998 ehf. Vonast hann til að samningur um málið verði gerður innan nokkurra mánuða.

Þetta kemur fram í viðtali við Jón Ásgeir í Viðskiptablaðinu í dag.

Í viðtali við Morgunblaðið fyrr í vikunni talaði Jón Ásgeir um að breskir fjárfestar kæmu að félaginu eftir tvö ár. Hlutaféð yrði notað til að lækka skuldir Haga.

Jón Ásgeir segir að um sé að ræða aðila sem hafi reynslu af fjárfestingum hér á landi.

Hagar reka sem kunnugt er Bónus, Hagkaup, 10-11 og fleiri verslanir. Níu milljarða króna skuldabréfaflokur Haga er á gjalddaga í nóvember og fullyrðir Jón Ásgeir í blaðinu að hún verði greidd upp. Hann vill hins vegar ekki upplýsa hvar Hagar fái fjármagn til þess. Landsbankinn og Kaupþing eru meðal eigenda skuldabréfanna.

Jón Ásgeir segir að hann hyggist ekki komi meira að rekstri Haga hér heima næstu þrjú árin, enda sé hann skuldbundinn í verkefni í Bretlandi þann tíma. Fyrirtækið sé í góðum höndum Finns Árnasonar forstjóra og Jóhannesar Jónssonar föður síns.

Fram kemur í Viðskiptablaðinu að kaupmáli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Ingibjargar Pálmadóttur frá árinu 2007, sem varð fréttaefni á dögunum, hefði verið afturkallaður. Engin skýring var gefin. Sem stendur er því engin kaupmáli í gildi á milli þeirra hjóna.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar