Fimmtudagur - 27.8 2009 - 07:32 - Ummæli ()

Sjálfstæðisflokkur styður Icesave með fyrirvörum en gagnrýnir „forkastanleg vinnubrögð ríkisstjórnarinnar“

althingishusid.jpgÞingmenn Sjálfstæðisflokksins ætla að greiða atkvæði með ríkisábyrgð vegna Icesave-samninganna með þeim fyrirvörum sem fjárlaganefnd Alþingis hefur afgreitt, samkvæmt nefndaráliti fulltrúa flokksins sem Morgunblaðið vitnar til í frétt í dag.

Þar segir að  frumvarpinu hafi í raun verið kollvarpað og það bætt, vegna þess að meirihluti hafi ekki verið fyrir því. „Þær breytingar á frumvarpinu sem unnar hafa verið í fjárlaganefnd varpa ljósi á hversu forkastanleg vinnubrögð ríkisstjórnarinnar hafa verið í þessu máli,“ segir m.a. í nefndaaráliti þeirra Kristjáns Þórs Júlíussonar, Ásbjörns Óttarssonar og Einars K. Guðfinnssonar, í fjarveru Ólafar Nordal.

Þá er gagnrýnt að ríkisstjórnin hafi ætlað að keyra málið í gegnum þingið án þess að sýna öll gögn. Fyrirvararnir við ríkisábyrgðina, sem sjálfstæðismenn styðja, hafi gjörbreytt eðli málsins og gert það þess vert að styðja það.  „Í stað þeirrar galopnu og fáorðu heimildar sem frumvarpið mælti fyrir um hafa verið settir inn í það gildir fyrirvarar til þess að tryggja hagsmuni íslensku þjóðarinnar,“ segir í álitinu.

Ragnar H. Hall: Alþingi styrkti stöðu sína gagnvart framkvæmdavaldinu

Ragnar H. Hall, hæstaréttarlögmaður, gagnrýndi Icesave-samninga harkalega fyrr í sumar, en segir nú að Alþingi hafi styrkt stöðu Íslands mikið og fyrirvararnir gjörbreyti stöðu landsins vegna ríkisábyrgðarinnar á Icesave-skuldunum.

„Mér finnst Alþingi hafa sýnt styrk sinn í þessu máli. Nefndarvinnan í fjárlaganefnd hefur gjörbreytt málinu og skapað betri sátt um það, svo ekki sé talað um mikilvægi fyrirvaranna sem settir eru við ríkisábyrgðina,“ segir Ragnar við Morgunblaðið.

Ragnar segir samstöðuna meðal allra flokka, nema Framsóknarflokks, hafa skipt miklu máli. „Mér finnst hún [samstaðan, innsk. Mbl.] vera mesti sigurinn.“

Stefnt er á að ljúka Icesave-málinu á Alþingi í dag.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar