Sunnudagur - 30.8 2009 - 12:03 - Ummæli ()

Harðjaxlar í Sjálfstæðisflokki: Nær allir þingmenn flokksins eiga heima í Samfylkingunni

valholl.jpgHörðustu andstæðingar Icesave-samninganna í Sjálfstæðisflokknum eru svo reiðir Bjarna Benediktssyni flokksformanni og öðrum þingmönnum flokksins, sem sátu hjá við atkvæðagreiðslu um ríkisábyrgð á Icesave-samkomulaginu á Alþingi á föstudaginn, að þeir hvetja þá til að ganga í Samfylkinguna. Þeir segja að þingmenn sem staðfestu ríkisábyrgðina eða greiddu götu hennar ættu að skammast sín.

Þetta má lesa í Vefþjóðviljanum sem harðjaxlar til hægri í flokknum halda úti á netinu.

Árna Johnsen og Birgi Ármannssyni er hrósað fyrir að greiða atkvæði gegn ríkisábyrgðinni. ‘Einnig er sjálfsagt að muna að formaður Framsóknarflokksins stóð sig oft afar vel, og þingmanna best, í umræðum um þetta mál, og komst oft að kjarna þess, ólíkur mörgum öðrum þingmönnum stjórnar og stjórnarandstöðu, að ekki sé talað um fréttamenn og álitsgjafa,’ segir Vefþjóðviljinn.

Þá segir: ‘Þeir fjórtán þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem í gær vörðu atkvæði sínu ekki gegn ríkisábyrgð á icesave-reikningum Landsbankans, ættu að óska inngöngu í Samfylkinguna.’

Vikið er sérstaklega að Árna Johnsen: ‘Allir vita að síðustu ár hafa margir gagnrýnt Árna Johnsen og talið hann eiga lítið erindi á Alþingi. Ekki þarf að rekja þá umræðu. En þeir sem vilja fjalla af sanngirni um Árna, þeir mega vel viðurkenna að í gær stóð hann sig betur, og átti meira erindi á Alþingi, en mikill meirihluti þeirra sem þar sitja. Fjórtán af sextán þingmönnum Sjálfstæðisflokksins eru kyrfilega í þeim hópi.’

Vefþjóðviljinn gagnrýnir einnig fjölmiðla og bloggara:  ’Áhugaleysi fréttamanna og álitsgjafa á raunverulegum atriðum icesave-málsins er ótrúlegt. Ekki síst þegar horft er til ofboðslegs áhuga sem sömu aðilar fá stundum á allskyns þýðingarlitlum smámálum. Þá er öllum flötum velt upp og málin rætt langt fram yfir síðasta söludag, en þegar hundruð milljarða eru í húfi, þá er enginn áhugi. Hann vaknar líklega ekki fyrr en næst finnst smámál til að hrópa sig hásan yfir. Þegar hundruð milljarða eru í húfi og allt veltur á því hvort lagaleg rök eru, eða eru ekki, fyrir því að ábyrgð á þeim fjárhæðum hvíli á Íslendingum, þá reynist mönnum ómögulegt að hugsa eða tala um að kjarna málsins.’

Í ritstjórn Vefþjóviljans sitja Glúmur Björnsson, Hörður Helgason og Þorsteinn Arnalds.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar