Viðskipti Mánudagur - 31.8 2009 - 09:54 - Ummæli ()

Fréttaauki Eyjunnar um Baug og Haga: Fjármálafimleikar fyrir fáa útvalda

jonasgeirogingibjorg.jpgEins og fram kom í Baugsmáls-yfirheyrslum yfir Magnúsi Guðmundssyni þáverandi yfirmanni Kaupþings í Lúxemborg var samband Baugs og Kaupþings þegar 1999 orðið náið. Síðan virðist ekki hafa borið skugga á sambandið – kaup félagsins 1998 ehf á Högum frá Baugi eru enn eitt dæmið. Lánayfirlit Kaupþings frá í september veitir innsýn í þessi viðskipti sem eru gott dæmi um fjármálafimleika sem Baugsveldið hefur fengið að stunda í tryggu skjóli Kaupþings.

Þetta segir Sigrún Davíðsdóttir sem í dag skrifar fréttaauka fyrir Eyjuna um Baug og Haga.

Kreppan sem byrjaði sem lausafjárkreppa sumarið 2007 hitti eins og skot skuldsett fyrirtæki sem voru knúin áfram af lánum rétt eins og lækur knýr myllu. Baugur var enginn undantekning. Kröfur í þrotabú Baugs nema 319 milljörðum, stærsta skuldin var við Landsbankann, 100 milljarðar króna. Slík ofurskuld þýðir í raun að Landsbankinn gat sig ekki hreyft gagnvart Baugi og hinir bankarnir lítt betur staddir gagnvart Baugi. Ofurskuldir lúta öðrum lögmálum en venjulegar skuldir: bankinn hefur tök á þeim sem skulda hlutfallslega litlar upphæðir – en þeir sem skulda banka óeðlilega mikið hafa tök á bankanum. Kannski var þetta ein ástæðan fyrir að Baugur brást seint við kreppunni.

Sú kenning hefur verið sett fram af þeim sem til þekkja að Baugur hafi í raun verið kominn í þrot í mars 2008 en því hafa Baugsmen hafnað. Í apríl 2008 var brugðið á það ráð að stokka eignirnar upp á nýtt: Styrkur Invest hélt utan um FL Group hluta Baugs og Stoðir Invest um fjölmiðlafyrirtækin. Baugur Group fór með erlendar eignir Baugs og Gaumur með íslenska verslunarreksturinn, þar á meðal Haga. Það var alltaf hópur í kringum Baugsfélög. Í eignarhaldi þessara félaga koma til dæmis við sögu Ingibjörg Pálmadóttir eiginkona Jóns Ásgeirs, Hreinn Loftsson og Þorsteinn Másson. Baugur var þá óskráð félag og upplýsingar því takmarkaðar.

Í maí 2008 var 1998 ehf stofnað. Gaumur, í eigu Jóns Ásgeirs og fleiri, átti rúm 80 prósent og tæp tíu prósent voru skráð á ISP, í eigu Ingibjargar, annars vegar og hins vegar á Bague SA, tengt Baugsveldinu, stofnað í Lúxemborg 2004 með klassískum Kaupþingshætti af þremur Tortólufélögum í eigu bankans. 1998 ehf var nú látið kaupa Haga af Baugi Group, þ.e. Jón Ásgeir seldi sjálfum sér félag út úr félagi sem hann átti sjálfur.

Lánayfirlit Kaupþings sýnir að Kaupþing lánar 1998 ehf 30 milljarða króna til kaupanna. Því mætti ætla að Kaupþing hafi metið Haga á 30 milljarða. Hér er þó ekki allt sem sýnist. Það eru til ýmsar aðferðir til að meta verðmæti fyrirtækja – og ein leiðin er að skoða afkomutölur fyrirtækja (Ebitda): samkvæmt þeim útreikningum hefði Hagar ekki verið ‘nema’ 18-22 milljarða virði. Kaupþing er líka greinilega ekki ánægt með að hafa aðeins Haga að veði og tekur einnig 35 prósenta hlut í Baugi að veði. Hér má þó velta fyrir sér hvort Baugur hafi ekki þegar verið veðsettur upp í rjáfur og hvers virði 35 prósenta hluturinn hafi verið. Samkvæmt lánayfirlitinu mat Kaupþing þessi veð á 50 milljarða, sumsé vel yfir láninu sem veitt var.

baugurlogoid.jpg

En fleira stingur í augun varðandi þetta lán. Á yfirlitinu stendur að 1998 ehf hafi verið stofnað til að kaupa Haga, Kaupþing hafi fjármagnað þau kaup með láni upp á 30 milljarða – sem hafi síðan verið notað til að greiða upp 25 milljarða skuld við Kaupþing og fimm milljarða skuld við Glitni. Fyrir óinnvígða er erfitt að skilja hvernig sömu 30 milljarðarnir eru notaðir bæði til að kaupa Haga – og – til að borga ótengdar skuldir. Utan Kaupþingsvéa gengi þetta ekki upp: annaðhvort hefur fé til Hagakaupanna komið annars staðar frá, sem væri athyglisvert því fé lá ekki á lausu í fyrravor, eða þarna liggja að baki einhverjar óútskýrðar bókhaldskúnstir. Á pappírnum minnkuðu skuldir Baugsveldisins við Kaupþing. Hér væri einnig áhugavert að vita hverjir höfðu stofnað til skuldanna sem þarna voru greiddar með peningunum sem voru líka notaðir til að kaupa Haga.

Út frá þessum upplýsingum er erfitt að sjá hvaða forsendur voru fyrir því að seldar væru eignir út úr Baugi, snarskuldsettu félagi, til eigenda Baugs sem áttu allar skuldirnar. Í dag horfa veðin öðruvísi við: Nýja Kaupþing hefur væntanlega Haga enn að veði en við gjaldþrot Baugs þurrkaðist út 35 prósenta veð í Baugi. Því er spurning hvaða forsendur eru fyrir því að hinir þrír eigendur 1998 ehf fái að halda Högum sem heldur utan um allar íslensku verslanir Baugs með góðu sjóðsstreymi og mikilli veltu. Í raun má líta svo á að eigendur 1998 efh hafi búðareksturinn til frjálsra afnota þar til lánið gjaldfellur, á næsta ári eftir því sem best er vitað. Á þeim tíma hafa eigendur fræðilega séð tækifæri til að draga út arð og kostnað ýmislegan. Hvað verður eftir þegar og ef bankinn tekur á endanum 1998 ehf yfir á eftir að koma í ljós.

Lánið til Baugs er nú í Nýja Kaupþingi. Stærðarhlutföllin eru athyglisverð. Lánið nemur 30 milljörðum króna. Nýja Kaupþing var endurfjármagnað fyrir nokkrum vikum með ríkisframlagi upp á 72 milljarða króna. Þetta eina lán nemur því ríflega 40 prósentum af eigin fé bankans. Það hvílir mikið á Högum – en samkvæmt lögmálum ofurlána hafa eigendur styrka stöðu gagnvart bankanum. Fyrir utan þetta 30 milljarða lán voru skuldir Haga síðast þegar fréttist 22 milljarðar. Spurning hvernig Högum vegnar með slíkar klyfjar. Hver staðan er nákvæmlega er þó ekki gott að segja því nú tíðkast að fresta birtingu reikninga um óákveðin tíma og þetta hafa Hagar tilkynnt til Kauphallarinnar.

Jón Ásgeir tilkynnti nýlega að þrír erlendir aðilar hyggðust leggja Högum til 16 milljarða króna eftir tvö ár. Það hossar ekki hátt í skuldir Haga upp á 52 milljarða. Ríkisbankinn Nýja Kaupþing á væntanlega að sýna þolinmæði og skilning þangað til. Þessir stórhuga fjárfestar eru þó ekki nafngreindir. Tveir umsvifabræðra Jóns Ásgeirs, þeir Kevin Stanford og Sir Tom Hunter, um hríð ríkasti Skotinn, hafa báðir verið á auðmannalista Sunday Times undanfarin ár en féllu af listanum í ár. Don McCarthy stjórnarformaður House of Fraser er einnig umsvifabróðir. Hann missti reyndar 20 milljónir punda af sínum auði í fyrra en á enn 90 milljónir samkvæmt auðmannalistanum. Þremenningarnir verða kannski búnir að ná sér eftir tvö ár – en kannski eru það aðrir sem ætla að hlaupa undir bagga með Högum einhvern tíma í blárri framtíð.

Sambandið við þremenninganna hefur staðið undanfarin ár. Árið 2007 tók Baugur yfir Immo Croissance, fasteignafélag í Lúxemborg fyrir 145 milljónir evra. Í yfirlýsingu þar að lútandi kom fram að þremenningarnir væru fastir meðfjárfestar Baugs, Stanford sat í stjórn Baugs. Immo-kaupin voru á vegum Kaupþings en lán til Baugs vegna þeirra eru ekki í lánayfirlitinu frá í september. Skúli Þorvaldsson var viðriðinn Immo Croissance, samanber lánayfirlitið. Í Lúxemborg hefur Baugur verið viðriðin heilan klasa fasteignafélaga á vegum West Coast Capital, í eigu Hunters. – Hvort þessar fjárfestingar lentu í gjaldþroti Baugs eða voru með öðrum hætti í eigu Jóns Ásgeirs er ekki ljóst.

Umsvif Baugs undanfarin ár hafa verið eins og kvikasilfur, stöðugt verið að búa til nýjar einingar, brjóta upp og endurraða. Sir Philip Green ku aldrei hafa séð neitt jafn flókið og Baugsfélögin. Þannig hefur meðal annars verið hægt að búa til sífellt nýjar einingar til að veðsetja og þá flotið fé inn í félög sem síðan hefur verið hægt að taka arð út úr áður en þau félög verða efni í ný umbrot. Hreyfingarnar í kringum Baug, Haga og 1998 ehf eru sama eðlis. Munurinn er bara sá að nú er Baugur kominn í þrot – og það er verið að fjármagna hræringarnar með lánum úr banka sem er fjármagnaður af ríkinu, meðal annars af því gamli bankinn var keyrður í kaf með lánastarfsemi af þessu tagi.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar