Miðvikudagur - 2.9 2009 - 12:08 - Ummæli ()

Ólafur Ragnar staðfestir Icesave-lögin. Lætur fylgja áritun með tilvísun til fyrirvara Alþingis

olafur-ragnar-2008.jpgÓlafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur staðfest lög um ríkisábyrgð vegna Icesave-samninga við Hollendinga og Breta. Það gerir hann með sérstakri áritaðri tilvísun til fyrirvara Alþingis við ríkisábyrgðina. Ekki er kunnugt um að forseti Íslands hafi áður staðfest lög frá Alþingi með áritun af þessu tagi.

Í yfirlýsingu frá forsetanum segist hann vona að kraftar þings og þjóðar verði sameinaðir í því brýna verkefni að endurreisa íslenskt efnahagslíf, styrkja fjárhag heimilanna og stoðir atvinnuveganna.

Ólafur Ragnar bendir á að í lögum um ríkisábyrgð vegna Icesave-samninganna séu margvíslegir fyrirvarar sem settir voru í upphaflega frumvarpið. Fyrirvararnir séu niðurstaða samvinnu fulltrúa fjögurra þingflokka í fjárlaganefnd Alþingis og byggðir á tillögum og hugmyndum fjölda sérfræðinga og áhugafólks á almennum vettvangi. Samstaða hafi náðst á Alþingi og utan þess um að afgreiða lögin í krafti þessara fyrirvara og Alþingi hafi samþykkt þá með afgerandi hætti.

Orðrétt segir forseti Íslands í yfirlýsingu sinni:

„Eðlilega er þó enn andstaða við málið meðal almennings eins og undirskriftir um 10.000 Íslendinga, sem forseta hafa borist, eru meðal annars til vitnis um. Fyrirvararnir sem Alþingi smíðaði og samþykkti taka mið af sanngjörnum rétti þjóðarinnar, hagsmunum Íslendinga á komandi árum og alþjóðlegri samábyrgð. Forseti hefur því ákveðið að staðfesta lögin með sérstakri áritaðri tilvísun til fyrirvara Alþingis. Um leið lætur forseti í ljósi þá ósk, að kraftar þings og þjóðar verði sameinaðir í því brýna verkefni að endurreisa íslenskt efnahagslíf, styrkja fjárhag heimilanna og stoðir atvinnuveganna. Að undanförnu hefur okkur birst á margvíslegan hátt að Íslendingar eiga fjölþætt sóknarfæri, að auðlindir landsins, hæfni og þekking þjóðarinnar geta orðið grundvöllur að traustu og réttlátu hagkerfi. Þau sóknarfæri þarf nú að nýta.“


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar