Stiglitz: Stjórnvöld spyrni við hugmyndum AGS um hraða lokun fjárlagagatsins
Joseph Stiglitz, Nóbelsverðlaunahafi og hagfræðiprófessor, lýsti áhyggjum sínum af því hversu hratt Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vildi að ríkisútgjöld væru skorin niður þegar hann fundaði með utanríkismálanefnd og efnahags og skattanefnd Alþingis í morgun.
Að sögn Lilju Mósesdóttur, þingmanns VG hvetur Stiglitz stjórnvöld til þess að meta það sjálf, sérstaklega vegna neikvæðra áhrifa mikilla uppsagna og aukins atvinnuleysis, hversu hratt sé hægt að fara í niðurskurð og leggja fram sínar eigin áætlanir í þeim efnum í viðræðum við sjóðinn. Hún kvað Stiglitz hafa bent á að AGS væri of upptekinn af fjárlagagatinu og hefði tilhneigingu til að ofmeta vöxt þjóðartekna í bataferlinu.
Ennfremur sagði hún hann hafa verið jákvæðan gagnvart hugmyndum eins og 20% almennri skuldaniðurfellingu en þá þyrfti jafnframt að jafna út þann ávinning sem skuldarar hefðu af slíku með þrepaskiptri skattheimtu.
Lilja sagði Stiglitz hafa litist vel á þá fyrirvara sem settir voru um endurgreiðslu Icesave lánanna og velti upp þeim möguleika að svipaðan hátt mætti hafa á endurgreiðslu lánanna í AGS pakkanum.
Stiglitz fundar með nokkrum ráðherrum ríkisstjórnarinnar síðdegis, þar á meðal þeim Steingrími J. Sigfússyni, Ögmundi Jónassyni og Jóni Bjarnasyni. Fundur þeirra hófst í fjármálaráðuneytinu kl. 16.
Stiglitz sagði þegar hann hélt fyrirlestur í Háskóla Íslands fyrr í dag, að það væri algjört grundvallaratirði að hafa allt uppi á borðum í tengslum við samninga um nýtingu á orkulindum og öðrum náttúruauðæfum hérlendis. „Þið ættuð ávallt að vita á hvað þið eruð að selja rafmagnið,“ sagði Stiglitz. Og hann sagði að fólkið í landinu yrði að njóta ávinningsins af nýtingunni.
Hann sagði að það væru mikil mistök ef Íslendingar myndu ekki nýta þær auðlindir sem þeir hafa yfir að ráða við núvernadi aðstæður.
Samkvæmt frétt mbl.is af fyrirlestrinum sagði Stiglitz ekki ljóst hér á landi að afraksturinn af náttúrulegum auðæfum, fiski og endurnýjanlegri orku rynni til almennings. Hann sagði almenning á Íslandi þurfa að endurheimta ágóðan af náttúruauðlindum landsins. Mistök í þessum efnum sé hægt að leiðrétta sem væri mikilvægt, því líklegt sé að náttúruauðævi Íslendinga verði enn verðmeiri er fram líða stundir.
Samkvæmt einum fundarmanna sem Eyjan ræddi við, sagði Stiglitz kvótakerfið eitt þeirra mistaka sem gerð hefðu verið.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
