Þriðjudagur - 8.9 2009 - 10:50 - Ummæli ()

Hofmóður? „Í engu öðru landi mundi blaðamaður hringja beint í seðlabankastjóra“

margudmundsson.jpgNýi seðlabankastjórinn, Már Guðmundsson, er ekki sáttur við að fjölmiðlar hafi milliliðalaust samband við hann. „Í engu öðru landi mundi blaðamaður hringja beint í seðlabankastjóra,“ er haft eftir honum á forsíðu Fréttablaðsins í dag. Már neitar þar að svara spurningu blaðamanns Fréttablaðsins um viðtal sem hann hafði veitt Reuters-fréttstofunni og vísaði á fjölmiðlafulltrúa bankans.

Vakin er athygli á þessum orðum  á fréttavefnum AMX  þar sem þau virðast talin til marks um hofmóð nýja seðlabankastjórans. ’Hvað hefði verið sagt, ef Davíð Oddsson [fyrrverandi seðlabankastjóri] hefði talað svona til blaðamanns? Ætli það hefði ekki verið sérstök frétt um það í 08.00 fréttum RÚV?’ er spurt á AMX. Þar velta menn því einnig fyrir sér hvort seðlabankastjóri hafi  sagt eitthvað svipað við fréttamenn Reuters-fréttastofunnar.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar