DV greinir frá því í dag að gamli Glitnir þurfi líklega að afskrifa rúmlega 800 milljóna króna skuld félags í eigu hins stálheppna útrásarvíkings Bjarna Ármannssonar.
Lánið var tekið í ársbyrjun 2008 til að fjármagna hlutabréfakaup. Fjárfestingin er sögð vera sorgarsaga, sem lítur út fyrir að endi vel fyrir Bjarna.
Ekki er búið að afskrifa skuldirnar, en staða fyrirtækisins er það slæm að líklega verður þrautalendingin í málinu sú að skilanefnd Glitnis þurfi að afskrifa skuldirnar.
Fyrirtæki Bjarna skilaði ársreikningi inn til Fyrirtækjaskrár í byrjun ágúst. Af honum er alveg ljóst hversu slæm staða félagsins er.
