Innlent - fimmtudagur - 10.9 2009 - 10:00

Jón Ásgeir vel staddur fjárhags-lega. ‘Ekki hafa áhyggjur af mér.’ Enginn fer í fangelsi út af hruninu. Deilir hart á Egil Helga

jon-asgeir-london.jpgAthafnamaðurinn Jón Ásgeir Jóhannesson segist vera vel staddur fjárhagslega þrátt fyrir gjaldþrot Baugs og fleiri félaga sinna.  Hann sé ekki í persónulegum ábyrgðum fyrir milljarða skuldunum.  Hann deilir harkalega á Egil Helgason og segir hann misnota vald sitt.  Þá kveðst hann hafa kosið Samfylkinguna en þó oftar Sjálfstæðisflokkinn.

Þetta kemur fram í löngu viðtali í Viðskiptablaðinu í dag.

„Ég er auðvitað búinn að tapa mjög miklu af mínum fjármunum en ég er ekki umvafinn persónulegum ábyrgðum. Fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af mér, “ segir hann í viðtalinu.

Jón Ásgeir deilir harkalega á sjónvarpsmanninn og Eyjubloggarann Egil Helgason, nafnlausa bloggara á netinu og þá sem búið hafa til myndbönd sem skapi honum neikvæða ímynd. „Þarna eru bara á ferðinni menn með skítlegt eðli og ég ætla ekki að fara niður á sama plan,“ segir Jón Ásgeir þegar hann e spurður hvort hann ætli að svara fyrir sig. „Ég gæti eflaust búið til myndbönd ef ég ætlaði mér það en hef ekki áhuga á því að taka þátt í svona löguðu.“

Jón Ásgeir er spurður hvort honum sé ekki annt um mannorð sitt.

„Já já, mér er annt um það en eins og ég segi þá ætla ég samt ekki að leggjast á þetta lága plan. Mér dettur ekki til hugar að fara að svara nafnlausum bloggurum sem eru óttalegar bleyður og það er afar athyglisvert að starfsmenn RÚV halda þessu gangandi. Það bara gengur ekki. Ég hef oft hugsað hvort ég ætti að fara að blogga á móti þessu huglausa fólki sem felur sig undir breiðum hrömmum Egils Helagsonar, starfsmanns RÚV, en hef alltaf komist að þeirri niðurstöðu að láta þetta ekki hafa áhrif á mig. Það er ekki þessi virði og ég held að tíminn muni leiða það í ljós,“ segir Jón Ásgeir.

Jón Ásgeir segir ennfremur um Egil Helgason: „Agli er margt til lista lagt. Hann er vel að sér um margt og tekur skemmtilegri viðtöl við alls kyns listafólk, stjórnmála- og fræðimenn en flestir aðrir. Þessir hæfileikar hans hafa fært honum mikið vald sem hann kann því miður ekki að fara með. Hann virðist hafa sjálfdæmi um hvernig hann hagar sínum þætti. Þar fær hann tækifæri til að dæma og mismuna fólki á grundvelli eigin skoðana, sem þó eru hvorki merkilegri né ómerkilegri en skoðanir annars fólks. Vitaskuld brýtur svona háttalag allar innanhúsreglur RÚV. Til að bæta gráu ofan á svart notar hann þáttinn gegndarlaust til að auglýsa sorann á bloggsíðunni. Gaman væri að fá verðmiða á þá auglýsingu sem Egill fær prívat og persónulega á einkaframtakið, sem hann stundar á Eyjunni. Get ég fengið svona fyrir Bónus eða þú fyrir Viðskiptablaðið?“

Fram kemur í viðtalinu að Jón Ásgeir er nú búsettur á þremur stöðum; í Lundúnum, New York og á Íslandi. Hann situr  í stjórn Iceland og House of Frasier (fyrirtæki sem Baugur átti ráðandi hlut í) að beiðni PricewaterhouseCoopers, sem er  tilsjónaraðili yfir þrotabúinu.  Auk þess segist Jón Ásgeir sinna verkefnum tengdum fyrirtækjum sínum hér á Íslandi, s.s. Högum og 365 miðlum.

Í viðtalinu er Jón Ásgeir spurður hvort hann hafi verið  boðaður til yfirheyrslu hjá opinberum aðilum og þegar hann er spurður hvort hann, líkt og margir af fyrrverandi viðskiptafélögum hans, eigi von á því að vera boðaður til yfirheyrslu er svarið einfalt: „Nei!“

Blaðamaður Viðskiptablaðsins spyr Jón Ásgeir hvernig hann sjái rannsóknir  saksóknara á bankahruninu fyrir sér.  Hvort hann sjái fyrir sér menn í fangelsum á næstu árum fyrir misbresti í störfum í fjármálageiranum.

„Nei, ég held ekki. Ég tel að það versta sem kemur út úr þessu öllu er þetta Icesave-mál. Þó svo að hrunið hafi komið við marga þá held ég að það sé versti hluturinn,“ segir Jón Ásgeir. „Síðan er auðvitað spurning hvort menn hafi brotið lög, það þarf ekki endilega að vera.“

Jón Ásgeir er einnig spurður um tengsl við stjórnmálaflokka og styrki til þeirra. Hann svarar:  „Þau eru lítil sem engin og hafa ekki verið. Það hafa allir styrkt flokkana í gegnum tíðina og það eru í raun ekki nýjar fréttir,“ segir Jón Ásgeir. „ Ég hef líklega oftar kosið Sjálfstæðisflokkinn en Samfylkinguna“ segir hann.


Ekki eru leyfð ummæli við þessa frétt.