Fimmtudagur - 10.9 2009 - 11:04 - Ummæli ()

Kynbomban Kim Kardashian (29): Sæt sem Barbie

Kynbomban Kim Kardsahian situr fyrir sem brúðan Barbie í nýjasta eintaki tímaritsins Kurv.

kimbarb1.jpg

Það vakti mikla athygli á dögunum þegar þessi dökka þokkadís lét lita hár sitt ljóst, en hér er semsagt komin skýringin á því. Hún var að leika Barbie og Barbie er jú og verður ljóska.

Myndaþátturinn var gerður í tilefni af því að nú eru 50 ár liðin frá því að brúðan Barbie kom fyrst á markað. Þessi goðsagnarkennda dúkka hefur unnið sér margt til frægðar, meðal annars virðist hún móta útlitstengda sjálfsmynd margra ungra stúlkna og þannig hefur hún haldið sínum sessi sem fyrirmynd kvenleikans um áratugaskeið.

kimbbbarbie.jpg

Framleiðendur dúkkunnar, Mattell, slógust í lið með Kurv og gerðu Barbie að „gestaritstjóra“ þessa skemmtilega eintaks.

Það vekur þó sérstaka athygli hversu erótískt Barbie kemur fyrir í þessum myndaþætti og því hafa margir spurt sig hvað Ken eigi eftir að segja.

Það kemur í ljós.

kimbarb.jpg


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar