eyjan.is

Laugardagur 12.09.2009 - 10:57 - Ummæli ()

Breskir sérfræðingar í fjársvikum á leið til Íslands. Ólafur Þór og Eva Joly funduðu með SFO í London

sfo.jpgSérsveit breskra lögreglumanna, sem eru sérfræðingar í fjársvikum, kemur hingað til lands innan skamms á vegum Efnahagsbrotastofnunar Bretlands, SFO.

Daily Telegraph skýrir frá þessu í dag í kjölfar fundar sem Ólafur Þór Hauksson saksóknari og Eva Joly ráðgjafi áttu í gær í London með Richard Aldermann yfirmanni SFO.

Fundurinn hefur vakið mikla athygli breska fjölmiðla sem flestir segja frá honum í dag.

Í Telegraph segir að rannsóknin á starfsemi íslensku bankanna í Bretlandi komi vandræðalega út fyrir ýmsa málsmetandi menn í bankastarfsemi og viðskiptalífi þar í landi. Ekkert liggi þó fyrir um lögbrot.

Fram hefur komið að SFO hefur staðið fyrir sjálfstæðri rannsókn á íslensku bönkunum í London eftir hrun og var settur aukinn kraftur í hana í kjölfar þess að lánabók Kaupþings var lekið á netið, en upplýsingar þar um viðskiptahætti Kaupþings hafa vakið margar spurningar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is