Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sat í stjórn fjárfestingarfélags í Lúxemborg sem var stofnað í gegnum tvö skúffufélög í skattaparadísinni Tortola. Það var aldrei nein starfsemi í félaginu segir Gylfi sem segist ekki hafa vitað að Tortola hafi blandast inn í stofnun félagsins.
Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi.
Fram kom að félagið Motivation Investment Holding var stofnað í Lúxemborg árið 2000 og hafi Kaupþing í Lúxemborg séð um að stofna það. Það hafi bankinn gert í gegnum tvö félög sem skráð eru á eyjunni Tortola.
Umrædd félög á Tortóla heita Waverton Group Limited og Starbrook International Limited og komu margoft við sögu þegar Kaupþing stofnaði félög í Lúxemborg. Félögin lögðu svo fram 2,5 milljónir íslenskra króna í stofnfé hins nýja félags Motivation Investment Holding.
Stöð 2 sagði að endurskoðandi félagsins hafi verið Rothley Company Limited sem sé skráður til heimilis í Road Town á Tortola. Endurskoðunarfyrirtækið og stofnfélögin hafi sama pósthólf á Bresku Jómfrúareyjunum.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, hafi verið einn af fimm skráðum stjórnarmönnum Motivation Investment Holding.
Í samtali við Stöð 2 í gær sagði Gylfi að þegar félagið hafi verið stofnað hafi hann gegnt stöðu framkvæmdastjóra eignarhaldsfélags Alþýðubankans. Félagið starfaði á innlendum fjárfestingarmarkaði og átti m.a. hluti í Hugviti. Til hafi staðið að bjóða starfsmönnum þess upp á kaupréttarsamninga og hafi sú leið verið valin að stofna félag í Lúxemborg þar sem Hugvit var með starfsmenn víða um Evrópu.
Staðsetningin hafi verið valin til að gæta jafnræðis meðal starfsmanna. Haft var eftir Gylfa að hann hafi ekki haft vitneskju um að eyjan Tortola hefði blandast inn í stofnun félagsins. Aldrei hafi verið nein starfsemi í félaginu en það var leyst upp í febrúar á síðasta ári.
