Verði af áætlunum Norðuráls um álver í Helguvík þarf að kosta til næstum allri orku á Suðvesturhorni landsins. Þetta sagði Andri Snær Magnason rithöfundur í fréttum Ríkisútvarpsins í dag. Áformuð stærð álversins jafngildi Kárahnjúkavirkjun.
Í frétt RÚV var rifjað upp að Norðurál hafi samið við erlenda banka um umsjón með fjármögnun byggingar álversins í Helguvík. Fullbyggt á álverið að geta framleitt 360 þúsund tonn ár ári. Kostnaðurinn við álverið er um 200 milljarðar króna. Andri Snær Magnason rithöfundur furðar sig á fyrirhugaðri stærð álversins og segir að hún samsvari einni Kárahnjúkavirkjun.
„Þegar þeir segja 360 þúsund tonn, þá hljómar það ekki mikið fyrir flestum. En það felur í sér að fyrirtækið þurfti að þurrka upp allar orkulindir Suðvesturhorns landsins, nánast í heild sinni, allt Reykjanesið, Hellisheiðina og restina af Þjórsá.“
Andri Snær segir að með þessu verði því ekki eftir nein orka í aðra atvinnuuppbyggingu á þessu landsvæði.
„Mér sýnist fyrirtækið stunda ákveðinn leik, fyrst tilkynnti það um lítið álver, svo stækkuðu þeir það og svo þremur dögum eftir hrun, 9. október, þá tilkynntu þeir að það þyrfti að vera 360 þúsund tonn.“
Andri Snær segir að Alcoa hafi leikið sama leikinn fyrir norðan. Fyrirtækið vilji einnig 360 þúsund tonna álver en til þess þurfi orku allra háhitasvæða fyrir norðan og Skjálfandafljóts. Samtök atvinnulífisins eru þeirrar skoðunar að aðeins stóriðja bjargi efnahag þjóðarinnar. Andri Snær er því ekki sammála.
„Það skapar mjög tímabundin umsvif í orkugeranum, en þessar mannfreku framkvæmdir ganga aldrei til lengdar og því kemur að því, eftir þessa bólu, að við stöndum aftur í sömu sporum,“ sagði Andri Snær Magnason við RÚV.
146
98