Landsbankinn í Lúx fékk 360 milljarða frá Evrópska seðlabankanum og sendi til Íslands með veði í útibúi í London
Hætt er við tjóni upp á allt að 700 milljónir evra, eða vel á annað hunduð milljarða króna, vegna þrotabús Landsbankans í Lúxemborg, samkvæmt frétt Ríkissjónvarpsins í kvöld. Þar einnig fram að Landsbankinn í Lúxemborg hafi fengið 360 milljarða króna lán frá Evrópska seðlabankanum, en þeir fjármunir hafi allir farið beint til Landsbankans á Íslandi og séu tengdir Icesave með veði í Landsbankanum í London.
Í frétt RÚV er rifjað upp að Landsbankinn í Lúxemborg hafi verið settur í greiðslustöðvun af þarlendum yfirvöldum 8. október og úrskurðaður gjaldþrota 12. desember. Það gjaldþrot hefði hinsvegar aldrei þurft að koma til að mati innstæðueigenda.
RÚV bendir á að helstu kennitölur bankans séu athyglisverðar. Útlánin, lánabókin, er uppá 1.370 milljónir evra. Kröfurnar eru 750 milljónir frá Landsbankanum á Íslandi, innstæðueigendur áttu 220 milljónir, aðrar skuldir voru uppá 80 milljónir. Þá er þarna einnig skuld við Seðlabankann í Lúxemborg uppá 1.200 milljónir Evra en það voru peningar sem stoppuðu aldrei í Lúxemborg heldur fóru beint til Reykjavíkur.
Þessar 1.200 milljónir eru eftirstöðvar af risaláni sem var upphaflega tveir milljarðar evra, jafnvirði 360 milljarða króna í dag. Þetta lán er í engu samræmi við aðra veltu í Landsbankanum í Lúxemborg. Það var veitt var með baktryggingu í Evrópska Seðlabankanum og fór beint útfyrir evrusvæðið og til Landsbankans í Reykjavík. Þetta lán tengist Icesave því að veðið fyrir þessu risaláni eru skuldabréf í Landsbankanum í Lundúnum. Þetta lán hefur þvælst fyrir því að hægt er að gera upp þennan banka í Lúxemborg.
Innistæðueigendur sem flestir eru Íslendingar telja að þessi lánveiting hafi verið ábyrgðalaus en yfirvöld í Lúxemborg og Evrópski seðlabankinn hafi vitað að þetta var í raun lán til Íslands en ekki til bankans í Lúxemborg.
Í samtali við RÚV sakaði talsmaður innstæðueigenda skilanefnd Landsbankans og fjármálayfirvöld í Lúxemborg m.a. um samskiptaklúður og aðgerðarleysi.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
