Sunnudagur - 13.9 2009 - 17:19 - Ummæli ()

Mannslát í höfninni: Ekki búið að bera kennsl á manninn

logregla3.jpgLögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki náð að bera kennsl á karlmann sem fannst látinn í Reykjavíkurhöfn í morgun. Óskar lögregla eftir upplýsingum frá þeim sem telja sig geta gefið upplýsingar um manninn.

Lögreglan sendi nú síðdegis frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vinnur nú að því að bera kennsl á karlmann sem fannst látinn í Reykjavíkurhöfn á tíunda tímanum í morgun. Talið er að maðurinn sé 20-30 ára en hann er um 170 sm á hæð, grannvaxinn, dökkhærður með dökkt, tveggja daga skegg og sólbrúnn. Maðurinn var klæddur í munstraðan bol, bláan og gulan, dökkbláar gallabuxur, svarta púmaskó með hvítum röndum og hvíta úlpu með gráum ermum. Á honum fundust lyklar af gamalli Mitsubishi-bifreið og húslykill. Þeir sem geta gefið upplýsingar um manninn eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1104.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar