Mánudagur - 14.9 2009 - 14:49 - Ummæli ()

Ekki nóg að lesa atvinnuauglýsingar: Aðeins 20% starfa eru auglýst

andres-jonsson.jpgSjálfsagt hafa sjaldan jafn margir blaðað í gegnum atvinnuauglýsingarnar í helgarblöðunum eins og undanfarið. Þetta er þó ekki áhrifaríkasta leiðin til að leita að nýrri vinnu segir Andrés Jónsson almannatengill og fyrirlesari. Andrés heldur því fram að eingöngu u.þ.b. 20% þeirra starfa sem losni ár hvert séu nokkurn tíma auglýst eftir hefðbundnum leiðum.

Andrés, sem stendur fyrir opnu námskeiði á miðvikudagin fyrir atvinnuleitendur og aðra sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaði, segir að margt sé hægt að gera til auka líkurnar á því að hreppa eitt af þeim störfum sem ekki eru auglýst.

Hann leggur áherslu á að koma sér og hæfileikum sínum á framfæri með markvissum hætti, vinna skipulega að virkjun tengslanetsins og skilja hvernig ákvarðanir um ráðningar eru teknar hjá fyrirtækjum og stofnunum.

„Það eru margir sem tala um að virkja tengslanetið og það er rétt að það skiptir miklu máli. En það gleymist gjarnan að velta því fyrir sér hvort fólk í tengslanetinu viti hvernig það eigi að lýsa kostum þínum og reynslu. Eins og með mig. Ef einhver væri að mæla með mér í starf í dag, þá myndi viðkomandi segja „Andrés Jóns, hann stofnaði Eyjuna.is og er með mikið lesið blogg þar“. Það er mikilvægt að vita hvað sé líklegast að fólk nefni þegar það hefur 20 sek til að segja einhverjum frá þér. Og það er í lagi að hjálpa fólki með þetta og segja eitthvað eins og: „Getur sagt honum að ég hafi unnið í Apótekinu á Landspítalanum og hafi endurskipulagt allt lyfjadreifikerfið þar.“ Þetta er lítið dæmi um eitthvað sem getur haft umtalsverð áhrif á það hvort að tengslanetið skili þér starfstækifærum eða ekki,“ segir Andrés.

Námskeiðið sem Andrés heldur kallast „Komdu þér á framfæri – ekki lesa atvinnuauglýsingar“ og hefur fengið frábærar viðtökur. Einnig eru áætluð nokkur námskeið á vegum stéttarfélaga á næstunni. En VR, SSF og BHM hyggjast bjóða félagsmönnum sínum upp á námskeiðið nú í september og október.

Opna námskeið á miðvikudaginn verður í Háskólanum í Reykjavík, Kringlunni 1, kl. 17 og stendur til 19. Verðið er 2.500kr. Fólk getur skráð sig með því að senda tölvupóst á netfangið namskeid@godsamskipti.is.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar