eyjan.is

Þriðjudagur 15.09.2009 - 11:19 - Ummæli ()

Könnun: Aðeins 1% landsmanna telja að Ólafur Ragnar geti verið sameiningartákn þjóðarinnar

org11.jpgAðeins 1% Íslendinga nefnir forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, þegar spurt er hver sé eða geti orðið sameiningartákn þjóðarinnar.

Rúmlega 72% landsmanna telur sig ekki geta neinn neinn einstakling sem sameiningartákn.

Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem fyrirtækið MMR gerði dagana 9. til 14. september. Þátttakendur í könnuninni voru tæplega eitt þúsund

Af þeim sem nefndir voru fengu flestar tilnefningar þau Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands (4,5%) og Davíð Oddsson, fyrrverandi ráðherra og seðlabankastjóri (3,8%). Þar á eftir komu þau Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, en ríflega 2% svarenda nefndu annað hvort þeirra. Þá nefndu rétt um 1% svarenda þá Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins og Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands. Aðrir voru nefndir af færri en 1% svarenda.

MMR leggur áherslu á að spurningin sem lögð var fyrir þátttakendur í könnunin tók hvorki tillit til þess hvort fólk styddi eða treysti einstaklingum sem nefndir voru, heldur eingöngu hvort fólk teldi að þeir væru eða gætu orðið sameiningartákn fyrir íslensku þjóðina.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is