Ný könnun: Sjálfstæðisflokkurinn nýtur mests fylgis – Stjórnin óvinsæl
Sjálfstæðisflokkurinn nýtur aftur mests fylgis á meðal þjóðarinnar, samkvæmt nýrri skoðanakönnun MMR, sem gerð var 9.-14. þessa mánaðar. Mælist stuðningur við flokkinn nú 31,6% en flokkurinn hlaut 23,7% atkvæða í kosningunum 25. apríl. Minnihluti þjóðarinnar styður ríkisstjórnina í sömu könnuna, en fylgi við hana mælist nú 44%.
Samfylkingin mælist með 24% fylgi í könnuninni en flokkurinn er stærsti flokkurinn á Alþingi, hlaut tæp 30% í kosningum. Fylgi við Vinstri græna dalar líka frá kosningum, fer úr 21,7% í 19,8%. Framsóknarflokkurinn hækkar lítillega, er nú 16,6% en var 14,8% í kosningunum. Þá mælist Borgarahreyfingin með 3,1% fylgi en hún hlaut 7,2% atkvæða í kosningum.
Könnun MMR er unnin úr svokölluðum álitsgjafahópi MMR, sem telur um 12 þúsund manns á aldrinum 18 til 67 ára. 909 tóku þátt í þessari könnun.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
