Ótímabær uppsögn? Traust á Morgunblaðinu fór vaxandi á síðustu mánuðum Ólafs
Traust á Morgunblaðinu hefur aukist nokkuð síðustu mánuði, eða undir lok setu Ólafs Þ. Stephensens í ritstjórastóli, samkvæmt nýrri könnun MMR um traust á fjölmiðlum. Könnunin var gerð 9.-14. þessa mánaðar, eða nokkrum dögum áður en Ólafi var sagt upp störfum. Morgunblaðið er hástökkvari könnunarinnar frá þeirri næstu á undan, sem gerð var í maí s.l., en traust á blaðinu mælist nú 60% miðað við 51,7% í maí.
Fréttablaðið er talsvert að baki Morgunblaðinu, en traust landsmanna á blaðinu mælist 38%, en hækkaði þó frá fyrri könnun, úr 34%. Traust á Viðskiptablaðinu er nú 25%, áður 22%, og aðeins 6% aðspurðra segjast treysta fréttaflutningi DV. Reyndar má segja að DV hækki sig mest hlutfallslega, því aðeins 4% sögðust treysta blaðinu í maí.
Fréttastofa RÚV ber af – Stöð 2 aðeins hálfdrættingur
Samkvæmt könnuninni bera landsmenn langmest trausts til fréttastofu Ríkisútvarpsins, eða um 75%. Til samanburðar treysta helmingi færri fréttastofu Stöðvar 2, eða aðeins 37% þjóðarinnar.
Af vefmiðlum trónir mbl.is á toppnum með 60% og er helsti keppinauturinn, visir.is, þar langt að baki með aðeins 27%. Eyjan.is hefur verulegt forskot á pressan.is, með 13,4% á móti 7,5%.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
