eyjan.is

Fimmtudagur 01.10.2009 - 08:45 - Ummæli ()

Ár liðið frá hruninu: Auðmennirnir halda enn fyrirtækjum sínum

nyjagamla.jpgNokkrir þekktustu auðmenn og útrásarvíkingar þjóðarinnar halda enn mörgum helstu fyrirtækjum sínum nú þegar ár er liðið frá fjármálahruninu sem þjóðin sýpur seyðið af.

Þetta er rifjað upp í úttekt í Morgunblaðinu í dag undir fyrirsögninni ‘Svona er nýja gamla Ísland’.

Fram kemur að bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir halda verslunarkeðjunni Lyf og heilsa sem rekur 22 apótek víðs vegar um landið, þar af 10 á höfuðborgarsvæðinu. Velta fyrirtækisins árið 2007 nam tæpum 6 milljörðum króna. Eigendurnir greiddu sér 100 milljónir króna í arð í fyrra.

Jón Ásgeir Jóhannesson heldur enn Högum og fjölmiðlafyrirtækinu 365. Hagar reka verslanirnar Hagkaup, 10-11 og Bónus víðs vegar um landið. 365 heldur úti Stöð 2, Bylgjunni, Fréttablaðinu og fleiri miðlum.

Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir halda enn Exista og Bakkavör. Exista á meðal annars tryggingarfélögin VÍS og Lýsingu, Símann, Öryggismiðstöðina og fleiri fyrirtæki. Bakkavör á matvælaverksmiðjur í Bretlandi.

Pálmi Haraldsson, kenndur við Fons, heldur enn flugfélaginu Iceland Express.

Ekki er minnst á Björgólf Thor Björgólfsson í samantekt Morgunblaðsins. Hann mun enn vera aðaleigandi símafyrirtækisins Nova, tölvuleikjafyrirtækisins CCP og einn aðal fjárfestirinn á bak við gagnaver Verne Holding sem til stendur að reisa á Keflavíkurflugvelli. Að auki á hann lyfjafyrirtækið Actavis.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is