eyjan.is

Föstudagur 02.10.2009 - 15:05 - Ummæli ()

Háskólinn í Reykjavík vill ekki sameinast HÍ. Aukinni samvinnu þó fagnað

haskolinn-i-reykjavik.jpgHáskólinn í Reykjavík lokar á möguleikann á að skólinn sameinist Háskóla Íslands.

Í sameiginlegri ályktun rektors, háskólaráð og Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík er þó umræðum um aukna samvinnu háskólanna fagnað og umtalsverð tækifæri til hagræðingar sögð geta falist í verkaskiptingu skólanna og samstarfi um gæðamál, aðstöðu, innkaup og ýmsan rekstur og þjónustu við nemendur.

„Hins vegar er sameining tveggja stærstu og jafnframt hagkvæmustu háskólaeininga landsins ekki ákjósanleg ef standa á vörð um fjölbreytni og framþróun háskólamenntunar, nýsköpunar- og vísindastarfs hér á landi til framtíðar,“ segir í ályktuninni.

Í ályktuninni er ný aðstaða Háskólans í Reykjavík í næsta nágrenni við Háskóla Íslands sögð skapa tækifæri til að auka flæði fólks og þekkingar á milli háskólanna og stuðla að fjölbreyttu og lifandi þekkingarsamfélagi í Vatnsmýri.

„Stærð og akademískur styrkur skólanna tryggja gæði háskólastarfsins og hvor þeirra um sig hefur sína sérstöðu. Háskólarnir eru uppspretta þekkingar og nýsköpunar og skapa þúsundum nemenda og fræðimanna valfrelsi til náms og starfa.“

HR segir Ísland þurfa sterka sjálfstæða háskóla. „Háskólinn í Reykjavík og Háskóli Íslands eru tveir stærstu háskólar landsins. Á þeim hvílir mikil ábyrgð gagnvart nemendum, starfsfólki og samfélaginu í heild. Nemendur og starfsfólk háskólanna eru hvött til að standa saman og styðja hvert annað í þeim krefjandi verkefnum sem háskólarnir og þjóðin öll stendur frammi fyrir. Ísland þarf sterka sjálfstæða háskóla og víðsýnt og kraftmikið háskólafólk fyrir það uppbyggingarstarf sem framundan er á komandi árum svo Íslendingar skipi sér áfram á bekk samkeppnishæfustu þjóða heims og njóti lífsgæða eins og best þekkjast,“ segir í ályktun HR.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is