Vímuefnaneytendur sækja í ofskynjunarsveppi sem vaxa á umferðareyjum Reykjavíkur
Það er algeng sjón nú á haustdögum að fólk með hulið andlit sé að tína í poka svokallaða ofskynjunarsveppi á höfuðborgarsvæðinu. Eins og nafnið bendir til framkallar neysla sveppanna ofskynjanir og vímu.
Fjallað er um þetta í Fréttablaðinu í dag.
Blaðið segir að mikið sé um að svartklæddir menn með hulin andlit sitji löngum stundum á hækjum sér á umferðareyjum og í vegköntum og tíni sveppi í hundraðavís í poka. Haft er eftir Þórarni Tyrfingssyni, lækni á Vogi, að þangað hafi komið fólk algjörlega sturlað og átti sig hvorki á stað né stund eftir neyslu slíkra sveppa, enda innihaldi þeir samskonar ofskynjunarefni og LSD.
Þórarinn segir að sveppirnir valdi ekki fíkn en þó sé algengt að fólk sem kemur inn á Vog vegna vímuefnaneyslu hafi prófað þá. Hann segir að sveppirnir geti valdið skemmdum á líffærum auk skynbrenglana. Þá sé hægt að slasast alvarlega undir áhrifum þeirra. Neysla slíkra sveppa geti einnig ýtt undir undirliggjandi geðsjúkdóma.
Fréttablaðið segir að sveppirnir sem um ræðir heiti trjónupeðlur. Um er að ræða hattsvepp, nokkra sentimetra að stærð sem vex víða í ágúst og september og allt fram í október. Algengt er að sveppurinn finnist á umferðareyjum og öðrum grasbölum í þéttbýli.
Blaðið hefur eftir Geir Jóni Þórissyni, yfirlögregluþjóni, að sveppirnir séu reglulega gerðir upptækir, enda efnið í þeim ólöglegt, og lögregla reyni eftir föngum að stöðva fólk við tínslu þeirra.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
