Mánudagur - 5.10 2009 - 15:49 - Ummæli ()

Erlendur Hjaltason segir af sér formennsku í Viðskiptaráði Íslands

erlendur-hjaltason.jpgErlendur Hjaltason hefur sagt af sér formennsku í Viðskiptaráði Íslands. Hann tilkynnti þetta í bréfi til stjórnar VÍ fyrir helgi.

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa, tekur við sem formaður, að því er segir í tilkynningu ráðsins.

Erlendur er forstjóri eignarhaldsfélagsins Exista. Í uppsagnarbréfinu segir Erlendur að tortryggni á endurskipulagningarferli Exista hafi verið mögnuð upp. Hann hljóti því að horfast í augu við þá staðreynd að formennska sín í Viðskiptaráði Íslands geti rýrt traust ráðsins og hafi af þeirri ástæðu ákveðið að segja af sér formennsku.

Nýja Kaupþing hefur kært forsvarsmenn Existu til sérstaks saksóknara vegna hlutafjáraukningar í Existu og sölu félagsins á hlut sínum i Bakkavör.

Bréf Erlendar til stjórnar Viðskiparáðs er eftirfarandi:

Til stjórnar Viðskiptaráðs Íslands.

Viðskiptaráð Íslands mun gegna afar mikilvægu hlutverki í þeirri efnahagslegu endurreisn sem bíður íslensks samfélags. Þá skiptir trúverðugleiki þess og traust miklu máli.

Það traust hef ég í starfi mínu sem formaður ráðsins síðastliðin tæp fjögur ár í senn reynt að verja og byggja enn frekar upp. Ég hef kappkostað að standa þannig að öllum störfum mínum að þau væru í anda góðra viðskiptahátta og um leið lóð á vogarskálar þeirrar virðingar sem Viðskiptaráð þarf að njóta.

Enda þótt vinna að fjárhagslegri endurskipulagningu Exista, þar sem ég er forstjóri,  hafi verið umdeild er þar unnið af miklum heilindum við að bjarga eins miklum verðmætum og auðið er. Þar á bæði atvinnulífið og þjóðin öll mikilla hagsmuna að gæta. Ég tel ekki að störf mín á þeim vettvangi eða öðrum hafi farið gegn hagsmunum eða orðspori Viðskiptaráðs.

Þegar tortryggni á endurskipulagningarferli Exista hefur hins vegar verið mögnuð upp með þeim hætti sem raun ber vitni hlýt ég þó að horfast í augu við þá staðreynd að formennska mín í Viðskiptaráði gæti rýrt traust ráðsins.

Því hef ég ákveðið að segja af mér formennsku í Viðskiptaráði Íslands.

Mér er það mikið kappsmál að starfsemi Viðskiptaráðs verði efld enn frekar og tel að sameining þess við Samtök atvinnulífsins sé ekki heillavænleg við þær krefjandi aðstæður sem íslenskt viðskiptalíf stendur frammi fyrir um þessar mundir.

Frekar ætti að efla samvinnu þeirra aðila sem vinna að framgangi íslensk viðskiptalífs.

Ég er þakklátur því öfluga fólki, bæði stjórn og starfsfólki,  sem ég hef unnið með og kynnst í störfum mínum fyrir Viðskiptaráð og óska því gæfu og gengis á komandi árum.

Reykjavík 2. október 2009,

Erlendur Hjaltason


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar