eyjan.is

Þriðjudagur 06.10.2009 - 10:00 - Ummæli ()

Könnun á trausti: Afgerandi stuðningur við lögreglu. Þjóðin treystir einnig RÚV, HÍ og HR

logregla1.jpgTraust til Alþjóða gjaldeyrissjóðsins fer þverrandi, enn færri treysta bankakerfinu en lögreglan nýtur afgerandi trausts.

Þetta eru meginniðurstöður könnunar sem fyrirtækið MMR gerði dagana 9.-14. september.

80,9% aðspurðra segjast bera mikið traust til lögreglunnar, 69,7% segjast bera mikið traust til Háskóla Íslands, 64,2% segjast bera mikið traust til Ríkisútvarpsins og Háskólinn í Reykjavík nýtur trausts 54,0% svarenda.

Verulegur munur er á trausti á ofangreindum fjórum stofnunum og öðrum sem spurt var um í könnuninni. Þannig segjast eingöngu 25,3% bera mikið traust til stéttarfélaganna í landinu sem koma næst í röðinni á eftir Háskólanum í Reykjavík. Bankakerfið situr sem fyrr á botninum hvað traust almennings áhrærir, en tæp 3% segjast bera mikið traust til þess. Fjöldi þeirra sem segist bera lítið traust til bankakerfisins eykst nokkuð milli kannana, fer úr 71,6% í maí 2009 í 80,0% nú.

Á vefsíðu MMR segir að athygli veki að traust til Alþjóða gjaldeyrissjóðsins minnki verulega, stendur nú í 5,5% en fór hæst í 17,8% í desember 2008. Að sama skapi hefur fjölgað verulega í hópi þeirra sem segist bera lítið traust til Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, en 65,3% segjast bera lítið traust til sjóðsins nú samanborið við 38,7% í desember 2008 og 50,0% í maí 2009.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is