Leiklistargagnrýni Eyjunnar: Bláa gullið í Borgarleikhúsinu. Bábilja kveðin niður
Borgarleikhús: BLÁA GULLIÐ. Frumsýning á Litla sviði, 10.október, kl. 14.00 Höfundur: Charlotte Böving, María Pálsdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir og Víkingur Kristjánsson Leikstjóri: Charlotte Böving Leikmynd: Gjörningaklúbburinn: Eirún Sigurðardóttir,Jóní Jónsdóttir og Sigrún Hrólfsdóttir. Búningar: Gjörningaklúbburinn. Lýsing:Kjartan Þórisson Tónlist: Ragnhildur Gísladóttir Sýningarstjórn: Hlynur Páll Pálsson Leikarar: María Pálsdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir og Víkingur Kristjánsson. Samstarfsverkefni leikhópsins Opið út og Borgarleikhússins.
Trúðurinn með rauða nefið hefur í langan tíma átt sér samastað í Borgarleikhúsinu. Hvaðan er hann eiginlega ættaður? Frá Argentínu? Frakklandi? Ítalíu? Það skiptir ekki máli í þessu sambandi heldur hitt að hann nálgast áhorfendur með annars konar gamansemi en Íslendingar ástunda allajafna,þessi fígúra sem talar og hreyfir sig með ýkjum er opinn gagnvart áhorfendum,ræðir við þá, gefur kost á viðbrögðum,athugasemdum. Hann er vinalegur og ágengur og stundum svolítið barnslega grunnhygginn því trúðar hafa löngum notað eigin mistök og ágalla sem lykil að því að fá áhorfendur til að hlæja.
Nú hafa elskulegu trúðarnir í Borgarleikhúsinu fengið í heimsókn frændsystkini sín úr leikhópnum„Opið hús“. Og þvílík frændsystkin! Ekki eru þau aðeins stútfull af visku og þekkingu heldur hafa þau eftir því sem ég fæ best séð þróað leikaðferðina áfram. Þarna er sem sagt mættur trúðurinn Rebekka,sem leikur annað Háið í frumefninu vatn,og lætur sér ekki bara nægja að tala um vinkonu sína Sólveigu Guðmundsdóttur sem leikur hana Rebekku,heldur fær vinkonan sjálf líka að taka til máls, minnast stundar úr æsku og jafnvel lenda skyndilega í háværum skoðanaskiptum við vin Símonar,Víking Kristjánsson. Einsog rússneskar dúkkur eru þessir trúðar. Sýningin kannski líka sem opnar stöðugt nýja sýn á frumefnið vatn með nýjum uppátækjum þar til komið er að kjarna málsins: Hver á vatnið?
Gjörningahópurinn býr til mínimalískan bláan sviðshring sem minnir á vatnið og uppruna trúðsins í sirkusnum, Bakgrunnurinn,tjaldið úr marglitum fléttuðum reipum fyrir innkomur og fleira skemmtilegt minnir líka á sirkus og fossa og lengst ofan úr himni falla lækir af reipum sem hægt er að sveifla sér í. Búningarnir allir bláir styðja ekki sérstaka karaktersköpun einstaks trúðs fremur að þeir minni á sumar sýningar Rússans Meyerholds og þýskra leikhópa millistríðsáranna. Allt er ákaflega vel unnið.Og lýsingin gagnleg og skemmtileg.
Tónlist og hljóðheimur Ragnhildar Gísladóttur er alvöru leikhústónlist. Þar er unnið af nákvæmni og húmor með sýningunni og áhorfendum og þar fáum við að upplifa hrein töfrabrögð einsog bergmálið sem fylgdi texta á einum stað.
Leikstjórinn Charlotte Böving heldur í alla strengi af þeirri tegund listfengi og kunnáttu sem ekki er allt of mikið af í íslensku leikhúsi. Hugmyndin að láta trúða með rauð nef, fræða fullorðna og stálpuð börn um jafn flókið fyrirbæri og vatnið og þýðingu þess fyrir lífið á jörðunni er bæði glettin og snjöll. Leiknu “sitúasjónirnar” sem varpa upp vísindalegum, heimspekilegum,samfélagslegum flötum á vatninu eru hver annarri skemmtilegri,margir góðir og lúmskir brandarar inn í samtímann eru þar fyrir fullorðna fólkið. Sýningin flæðir vel því hugvitsamlega og létt er skipt á milli atriða og skemmtlegt er hvernig unnið er með þagnir og ljós og myrkur. Víkingur,Sólveig og María sem ásamt leikstjóra semja verkið,nota ekki eins miklar ýkjur í karaktersköpun og frumkvöðlarnir í Borgó ná frábæru sambandi við salinn og hvert annað og sýna oft snilldartakta í meðferð texta og í hreyfingum.
Niðurstaða: Sú bábilja síðustu áratuga að fræðsla eigi ekki heima í leikhúsi er hér barin niður með skellihlátri og kærleik til alls sem lifir og streymir. Yndisleg sýning fyrir börn frá sex eða átta ára aldri og foreldra þeirra,afa og ömmur.
María Kristjánsdóttir
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
