Þriðjudagur - 13.10 2009 - 04:53 - Ummæli ()

Forsetinn vill 30 ára leynd yfir bréfum til útlendinga í þágu útrásarinnar

olafur-ragnar-2008.jpgForsetaembættið hefur synjað blaðamanni Fréttablaðsins um aðgang að sautján bréfum sem Rannsóknarnefnd Alþingis hefur fengið til skoðunar og forsetinn skrifaði til erlendra aðila til stuðnings íslenskum fjármálafyrirtækjum eða forsvarsmönnum þeirra. Embættið vill ekki birta bréfin fyrr en að liðnum þeim þrjátíu ára fresti, sem stjórnvöld geta nýtt, þegar birting upplýsinga telst vera skaðleg almannahagsmunum eða lögmætum hagsmunum einkaaðila. Fréttablaðið segir frá þessu í dag.

Eins og Fréttablaðið sagði frá 5. október er um að ræða bréf til ýmissa þjóðhöfðingja og áhrifamanna, meðal annars Al Thani, emírs af Katar, Bills Clinton, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og Hu Jintao, forseta Kína.

Rannsóknarnefnd Alþingis ritaði forseta bréf 11. ágúst og óskaði eftir afritum af fjórum tilteknum bréfum forsetans og spurðist fyrir um önnur bréf sem skrifuð hefðu verið „til stuðnings íslenskum fjármálastofnunum eða fyrirsvarsmönnum þeirra á tímabilinu 2000 til og með 2008″.

Í svarbréfi forsetaembættisins til rannsóknarnefndar Alþingis frá 27. ágúst eru tilgreind 13 bréf, auk þeirra fjögurra sem beðið var um. Aðeins eitt þeirra hafi verið gagngert skrifað í þágu fjármálafyrirtækis en í hinum sé vikið að starfsemi íslenskra banka í tilteknu landi eða þeirra getið í framhjáhlaupi um leið og fjallað er um önnur efnisatriði.

Fréttablaðið fékk aðgang að bréfaskiptum forsetaembættisins og rannsóknarnefndarinnar, og komst þannig á snoðir um tilvist bréfanna sautján og óskaði þá eftir aðgangi að þeim. Synjun forsetaembættisins barst blaðinu í gær. Þar er vísað til þess almannahagsmunir krefjist þess að aðgangur að bréfunum sé takmarkaður því þau hafi að geyma upplýsingar um samskipti við önnur ríki og það gæti spillt fyrir góðum samskiptum og viðkvæmu trausti við þjóðhöfðingja og erlenda ráðamenn ef bréfin eru birt enda hafi ekki verið gengið frá gagnkvæmu samkomulagi um birtingu.

Þá er vísað til þess að takmarka megi aðgang að gögnum sem varða „fjárhags- og viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila nema samþykki þeirra liggi fyrir“.

Fréttablaðið hefur vísað synjun forsetaembættisins til úrskurðarnefndar um upplýsingamál.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar