Svanur Sigurbjörnsson, læknir, fer hörðum orðum um detox-meðferðarauglýsingar Jónínu Benediktsdóttur á bloggi sínu hér á Eyjunni. Segir hann m.a. að „aðeins verulega fávitandi fólk um heilsufar og heilsuvernd myndi setja svona rugl í auglýsingu. Aðeins fólk sem er að leita að skjótfengnum gróða myndi setja svona glepjandi markmið í auglýsingu.“
Svani ofbýður að Jónína skuli auglýsa „djúsdaga“ þannig að hægt sé að missa hálft kíló á dag.
„Hvað heldur Jónína að losni á þessum djúsdögum úr líkamanum sem léttir hann um hálft kílógram? Hversu lengi heldur Jónína að það endist að hægt sé að losa hálft kg daglega? Það vita allir sem hafa farið í megrun að það losna 1-2 kg á fyrstu 4-7 dögunum vegna þess að garnainnihaldið minnkar við það að minnka fæðuinntöku. Með því að fara á fljótandi fæði (djúsdaga) eingöngu er þessari losun hraðað og að sjálfsögðu getur þá hálft kíló farið daglega í nokkra daga – en hvað svo? Mér kæmi ekki á óvart að Jónína myndi þá ráðleggja ristilskolun því eftir fljótandi fæði er ágætt að fá nokkra þúsundkalla fyrir að soga öll hin gríðarlegu meintu eiturefni úr ristlinum. Eiturefni sem enginn hefur sýnt fram á að séu til. Líkaminn er fullkomlega fær um að losa sinn úrgang gegnum lifur og nýru,“ skrifar Svanur.
Þá segir hann það blekkingu að léttast með þessum hætti. Fitan hverfi ekki jafn auðveldlega, auk þess sem djúsinn sé fullur af kolvetnum (sykri) sem haldi uppi insúlíni í blóðinu og því ekki hentugur til að megrast. Því auki það einungis líkur á að viðkomandi fitni strax aftur eftir að átakinu ljúki og verði þá jafnvel enn þyngri en áður. Síðan segir læknirinn:
„Manni blöskrar þessi ósvífni Jónínu að auglýsa svona gervilausnir og rugl sem ætti ekki að bjóða nokkru fólki. Hún er íþróttakennari að mennt og er starfsgrein sinni til skammar. Maður hefur séð svona tálsýnir auglýstar í amerískum tímaritum allt frá 7. áratug síðustu aldar og hefur þótt það mikill kostur fyrir Ísland og Íslendinga að slík fáviska og frat væri ekki boðið hérlendis. Því miður er það orðin staðreynd og maður verður að kyngja því líkt og öllu öðru hruni raunverulegra gæða sem hefur átt sér stað undanfarinn áratug.“
