Eva Joly og Ólafur Þór njóta mikils trausts. Traust á ríkissak- sóknara og rannsóknarnefnd minna
Meirihluti þjóðarinnar ber mikið traust til Evu Joly og Ólafs Þór Haukssonar, sérstaks saksóknara. Mun færri bera mikið traust til ríkissaksóknara og rannsóknarnefndar Alþingis.
Þetta er niðurstaða könnunar sem MMR hefur gert.
Tveir þriðju hlutar svarenda (66,9%) segjast bera mikið traust til Evu Joly, ráðgjafa sérstaks saksóknara vegna rannsóknar á refsiverðri háttsemi í tengslum við bankahrunið. Þetta eru 7,7 sinnum fleiri en segjast bera lítið traust til frú Joly (8,7%). Meirihluti svarenda (52,8%) kveðst einnig bera mikið traust til Ólafs Þórs Haukssonar, sérstaks saksóknara, sem eru 3,5 sinnum fleiri en segjast bera lítið traust til hans (15,2%).
Fjöldi þeirra sem segjast bera mikið traust til ríkissaksóknara, er aftur á móti nokkuð lægri, eða 35,7%, sem eru þó fleiri en segjast bera lítið traust til embættisins (26,2%). Með öðrum orðum, þriðjungi fleiri segjast bera mikið traust til ríkissaksóknara en segjast bera lítið traust til hans.
Nokkra athygli vekur að rannsóknarnefnd Alþingis mælist hafa lítið traust meðal heldur fleiri (31,1%) en segjast bera mikið traust til hennar (27,1%). Rannsóknarnefnd Alþingis er jafnframt sú af ofangreindum stofnunum sem fæstir segjast bera mikið traust til – eða 27,1% eins og áður sagði.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
