Þriðjudagur - 20.10 2009 - 06:29 - Ummæli ()

Vilja milljarða frá ríkinu í Helguvíkurhöfn – Ekki á samgönguáætlun og ekkert fé eyrnamerkt

helguvik.jpgÓvíst er hvort Reykjanesbær fær fjármagn frá ríkinu til að fullgera stórskipahöfn í Helguvík vegna álvers. Sveitarfélagið ætlar að fullgera höfnina óháð aðkomu ríkisins en milljarðalántöku þarf hins vegar til. Slík lántaka gæti reynst þrautin þyngri. Helguvíkurhöfn er ekki á samgönguáætlun og ekkert fjármagn því eyrnamerkt hafnargerðinni. Fréttablaðið segir frá þessu í dag.

Árni Sigfússon bæjarstjóri segir við blaðið að forsvarsmenn „nokkurra ríkisstjórna“ hafi á undanförnum árum gefið vilyrði fyrir fjármagni til að styðja við framkvæmdir í Helguvík, og þá sérstaklega til hafnargerðar. Nú sé hins vegar svo komið að taka þurfi af allan vafa um hvort ríkið hyggist efna orð sín um stuðning. Fram kemur í fundargerð Atvinnu- og hafnaráðs Reykjanesbæjar frá því í september að samgönguráðuneytinu og Siglingastofnun hafi ítrekað verið send erindi síðastliðin þrjú ár vegna framkvæmda í Helguvíkurhöfn, án þess að verkið hafi verið sett á samgönguáætlun.

Ríkið kemur ekki að hafnarframkvæmdum sem þessum

Kristján Möller samgönguráðherra segir að þar standi hnífurinn einmitt í kúnni og telur sig ekki bundinn af loforðum forvera sinna um fjármagn til hafnargerðar í Helguvík. Ekkert fjármagn hafi verið eyrnamerkt framkvæmdinni enda komi ríkið ekki að hafnarframkvæmdum sem þessum eins og samþykkt hafi verið með nýjum hafnalögum frá 2003. Endurskoðuð samgönguáætlun lítur dagsins ljós í kringum áramótin.

Árni segir að framkvæmdin í heild kosti tvo milljarða króna og hlutur ríkisins yrði um helmingur þeirrar upphæðar, samkvæmt fyrri loforðum. Hann segir að komi ríkið ekki að verkefninu þýði það erfiða lántöku, sem ekki sé í hendi, sem myndi síðan leggjast þungt á sveitarfélagið.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar