Áætlað er að Suðvesturlínan svokallaða sem á að liggja á um 200 kílómetra leið frá Hellisheiði til Reykjaness fari þvert yfir vatnsverndarsvæði Reykvíkinga og annarra íbúa höfuðborgarsvæðisins.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur þungar áhyggjur af málinu.
Frá þessu var sagt í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi.
Í fréttinni kom fram að þverpólitísk samstaða er í stjórn heilbrigðiseftirlitsins um að andæfa þessu.
Fulltrúi VG í stjórninni, Garðar Mýrdal, sagði að engu væri líkara en að raflínan hafi verið lögð með reglustiku án tillits til landsvæðis. Hann kvað menn áhyggjur af mengun sem gæti borist í vatnsból borgarbúa, bæði við framkvæmdirnar sjálfar og síðar við tæringu frá möstrunum.