Hugmyndaþing Reykjavíkur verður haldið í Ráðhúsinu á sunnudaginn.
Í frétt frá borgaryfirvöldum segir að þingið sé liður í þeirri stefnu að auka aðkomu íbúa að stefnumótun og ákvarðanatöku borgarinnar. Ætlunin se að safna í sarpinn góðum hugmyndum og tillögum um það hvernig efla má borgina til framtíðar og gera hana að enn betri stað til að búa og starfa í.
Boðið verður upp á vinnustofur þar sem íbúar geta komið eigin hugmyndum um ýmis málefni á framfæri.
Yfirskriftir vinnustofanna verða:
„Í hvernig borg viltu lifa?“
„Í hvernig borg viltu starfa?“
„Í hvernig borg viltu læra?“
„Í hvernig borg viltu eldast?“
„Í hvernig borg viltu leika þér?“
Boðið verður upp á fyrirlestra þar sem fyrirlesarar víðs vegar að kynna hugmyndir sínar um framtíð borgarinnar í stuttu, hnitmiðuðu máli. Meðal fyrirlesara eru Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhússins, Guðmundur Freyr Úlfarsson, prófessor við Umhverfis- og byggingaverkfræðideild Háskóla Íslands, og Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri Nýsköpunar og þróunar hjá Háskólanum í Reykjavík.
Loks verða kynntar aðgerðir til sóknar fyrir borgina undir yfirskriftinni „Skrefi á undan“. Aðgerðirnar eru afrakstur yfirgripsmikillar vinnu sem fram fór á vegum borgarinnar á vormánuðum til að greina sóknartækifæri fyrir borgina um leið og leitast var við að koma auga á hvað þyrfti að varast í núverandi efnahagsumhverfi. Að þessari vinnu komu borgarfulltrúar allra flokka, stjórnendur og starfsmenn borgarinnar, fulltrúar úr atvinnulífi, ungmennaráði Reykjavíkur, Reykjavíkurakademíunni og fulltrúar íbúa.
Í fréttatilkynningu frá borginni er haft eftir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra að allir flokkar í borgarstjórn leggi áherslu á að finna leiðir til að auka áhrif íbúa á þjónustu og þróun borgarinnar. „Ég hvet borgarbúa til að nýta sér þennan einstaka vettvang til að koma hugmyndum sínum og skoðunum á framfæri,“ segir hún.
Hugmyndaþingið hefst kl. 13 og stendur til klukkan 16 á sunnudaginn. Barnahorn verður í boði fyrir börnin og verður „þingmönnum“ boðið upp á létta hressingu.
