Föstudagur - 23.10 2009 - 11:14 - Ummæli ()

Öll spjót standa á Árna Páli eftir ræðu hjá ASÍ. Gagnrýndur á Alþingi og af atvinnurekendum

arni-pall.jpgÁrni Páll Árnason félagsmálaráðherra sætir harkalegri gagnrýni frá þingmönnum stjórnarandstöðunnar, útgerðarmönnum og Samtökum iðnaðarins vegna ræðunnar sem hann flutti á ársfundi Alþýðusambandsins (ASÍ) í gær.

Ráðherra sagði meðal annars í ræðunni að ef sjávarútvegur og stóriðja gætu ekki þolað hóflega innköllun veiðiheimilda og hóflega auðlindaskatta væru spurning hvort Íslendingar væru yfir höfuð að veðja á réttan hest og yrðu að leita annarra kosta um framtíðaratvinnuuppbyggingu. Þá kvað hann fast að orði um atvinnurekendur og fylgismenn stóriðju.

 „Það er langt síðan orðræða af því tagi sem félagsmálaráðherra hafði uppi hefur heyrst. Óforskammaðir kapítalistar, útgerðarauðvald, erlendir auðhringar, ginningarfífl stóriðju, grátkór og kveinstafir útgerðar og álfyrirtækja skal það nú heita,“ segja Samtök iðnaðarins í yfirlýsingu í morgun. Vonandi sé ráðherrann ekki að gefa tóninn fyrir lokasprettinn í stöðugleikasáttmálanum.

Málið var rætt við upphaf þingfundar í dag. Illugi Gunnarsson, formaður þingflokks sjálfstæðismanna, sagði að ýmis ummæli í ræðunni væru varla eftir hafandi. Áhugavert væri, að velta því fyrir sér hvort um væri  að ræða stefnu Samfylkingarinnar í atvinnumálum, en til þessa hefði verið talið að  stefnumörkun ríkisstjórnarinnar um stóriðjuskatta væri ættuð frá Vinstri grænum. Ummæli ráðherrans lýstu hins vegar sama viðhorfi til atvinnulífsins, að berja niður stóriðjuna og sjávarútveginn.

Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokks, sagðist hafa hrokkið verulega við þegar hann heyrði af ræðu Árna Páls. Vísaði hann til þeirra orða, að gengisfellingin hafi fært peninga frá íslensku launafólki til sægreifa og stóriðju og sagði að ráðherrann hlyti að þurfa að skýra þetta.
 
„Orð ráðherrans eru honum ekki einungis til minnkunar vegna þess hroka sem hann sýndi þeim sem vinna við þessar atvinnugreinar. Þau eru einnig vanvirða við það góða fólk sem mátti sitja undir ræðu hans,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdarstjóri LÍU í yfirlýsingu í morgun.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar