Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, segir að það traust og sá trúnaður sem hann og þjóðin sýndu forystumönnum fjármálafyrirtækja í útrásinni hafi ekki verið verðskuldaður og hafi kannski verið misnotaður með margvíslegum hætti.
Forsetinn lét þessi orð falla í viðtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins í tilefni af því að forsetaembættið birti í morgun nokkur þeirra bréfa sem forsetinn skrifaði erlendum aðilum til stuðnings útrásinni.
Í einu bréfanna er forsetinn að beita sér fyrir því að Al Gore, fyrrum varaforseti Bandaríkjanna, komi á fund stjórnenda Glitnis. Í öðru bréfi reynir hann að fá Bill Clinton, fyrrum forseta Bandaríkjanna, til fundar við Landsbankamenn.
Bréfin sem birt voru í morgun eru hluti þeirra bréfa sem rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið bað um vegna rannsóknar á þætti forsetans í útrásinni.
Ólafur Ragnar Grímsson sagði í viðtalinu á RÚV að hann og þjóðin yrðu að draga lærdóma af því sem gerst hefði og allir þeir sem að slíkum málum kæmu í framtíðinni. Hann kvað gagnrýni á forsetaembættið eðlilegan þátt í viðbrögðum við því áfalli sem þjóðin hefði orðið fyrir með bankahruninu.
