Laugardagur - 24.10 2009 - 16:51 - Ummæli ()

Steingrímur styður Svandísi: Blöskrar auglýsingar og áskoranir gegn faglegri ákvörðun

steingrimur-j-landsfundur.jpgSteingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, styður ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, í málefnum Suðvesturlínu. Honum blöskrar hvernig gengið er fram gagnvart Svandísi  vegna úrskurðar hennar, ráðherrann muni ekki láta hrekja sig út af sporinu. Steingrímur J. sagði þetta á fundi Vinstri grænna á Akureyri í morgun, samkvæmt frétt Ríkisútvarpsins.

Hann gangrýndi þá sem hafa auglýst í útvarpi og skorað á ráðherra að taka ákvörðunina aftur. Steingrímur segir að Svandís hafi tekið faglega ákvörðun um að láta Skipulagsstofnun endurskoða hvort Suðvesturlínur eigi að fara í sameiginlegt umhverfismat með tengdum framkvæmdum. Það var gert meðal annars vegna þess að álits var ekki leita hjá nógu mörgum aðilum. Steingrímur spyr hvers konar stjórnsýsla það væri af ráðherra ætti að láta undan þrýstingi og verða við kröfu um að hætta við að láta skipulagsstofnun meta málið að nýju.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar