Ný könnun Viðskiptablaðsins: Flestir treysta Davíð til að leiða þjóðina út úr kreppunni.
Tæplega fjórðungur landsmanna treystir Davíð Oddssyni, ritstjóra Morgunblaðsins og fyrrverandi Seðlabankastjóra, best til að leiða þjóðina út úr efnahagskreppunni. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra fylgir fast á hæla honum.
Þetta kemur fram í könnun sem birtist í Viðskiptablaðinu á morgun.
Blaðið lét spyrja Hverjum eftirtalinna einstaklinga myndir þú treysta best til að leiða Íslendinga út úr efnahagskreppunni? Hægt var að velja á milli formanna stóru stjórnmálaflokkanna, forystumanna samtaka vinnumarkaðarins og ritstjóra Morgunblaðsins.
Af þeim sem svöruðu nefndu 24% Davíð Oddsson, 23,2% nefndu Steingrím J. Sigfússon, 20,6% Jóhönnu Sigurðardóttur, 14,6% Sigmund Davíð Gunnlaugsson og 11,5% Bjarna Benediktsson. Gylfa Arnbjörnsson forseta ASÍ nefndu 3,7% og Vilhjálm Egilsson framkvæmdastjóra SA nefndu 2,4%.
Fyrirtækið Markaðs- og miðlarannsóknir gerði könnunina sem framkvæmd var á netinu.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
