Laugardagur - 31.10 2009 - 22:36 - Ummæli ()

‘Meiðyrðaflakk’ rætt í Sunday Times. Hannes Hólmsteinn sagður nýjasta fórnarlambið

london-6.jpgBreska stórblaðið The Sunday Times segir að Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor við Háskóla Íslands sé nýjasta fórnarlamb meiðyrðaflakks  -libel tourism – í Bretlandi, en honum hafi verið stefnt fyrir dómstól þar í landi af íslenskum auðmanni vegna ummæla sem hann birti á íslenskri vefsíðu. Málinu, sem tekið hafi fimm ár, sé nýlokið; Hannes hafi misst hús sitt og staðið frammi fyrir lögmannskostnaði upp á 150 þúsund pund – rúmar 30 milljónir íslenskra króna.

Blaðið segir að mál Hannesar sé vitnisburður um að London sé hin alþjóðlega höfuðborg meiðyrðamála og dómstólar þar séu reiðubúnir að kveða upp dóma í málum sem hafi afar lítil tengsl við Bretland. Stefnendur þurfi aðeins að sýna fram á að þeir hafi mannorð sitt að verja í Bretlandi og að hið ærumeiðandi efni hafi verið aðgengilegt þar í landi, jafnvel þótt það hafi aðeins verið á netinu. Stefnendur þurfi ekki að vera búsettir í Bretlandi.

Fram kemur í blaðinu að mörg sambærileg mál og Hannesar séu nú til umfjöllunar fyrir breskum dómstólum. Nefnt er að stjórnmálamaður frá Palestínu stefni sjónvarpssstöðinni Al-Jazeera í Katar vegna efnis sem flutt var á arabísku, Grikki nokkur stefni bandaríska dagblaðinu New York Times og pólitískur útlagi frá Túnis stefni þýska blaðinu Die Zeit.

The Sunday Times vitnar í Denis MacShane, þingmann Verkamannaflokksins, sem segir að breska meiðyrðalöggjöfin sé alþjóðlegt hneyksli og málið allt lýðræðishefð Bretlands til háðungar.

Blaðið segir að auðmenn kjósi að reka meiðyrðamál fyrir breskum dómstólum því auðveldara sé að vinna þau þar  en víða annars staðar, svo sem í Bandaríkjunum þar sem tjáningarfrelsið njóti mun meiri verndar. Þá spili það inn í að breskir dómstólar njóti alþjóðlegrar virðingar og því þyki auðmönnum fengur að því að geta flaggað úrskurðum frá þeim sér í hag.

Blaðið segir að kostnaðurinn við málareksturinn sé svo hár að flestir sem stefnt er reyni að ná sáttum eins fljótt og auðið er frekar en að bíða úrskurðar um efnisatriði stefnunnar.

Blaðið fjallar um mál Jóns Ólafssonar gegn Hannesi Hólmsteini og fleiri sambærileg mál. Haft er eftir lögmanninum Mark Stephens að samtök sem berjast fyrir mannréttindum og gegn spillingu þurfi í auknum mæli að horfast í augu við stefnur eða hótanir um stefnur  fyrir breskum dómstólum. Skipti þá ekki máli þótt upplýsingar þeirra og ásakanir séu á rökum reistar.

Í grein The Sunday Times segir að í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna hafi verið sett sérstök lög sem verji íbúa þeirra gegn breska meiðyrðaflakkinu.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar