Mánudagur - 2.11 2009 - 19:11 - Ummæli ()

Enginn sendiherra frá Bandaríkjunum á Íslandi allt þetta ár

usembassyrvik.jpgEnn hefur ekki verið skipaður nýr sendiherra Bandaríkjanna hér á landi en Robert S. Connan, sem Barack Obama Bandaríkjaforseti tilnefndi í vor, hætti við að þiggja starfið í sumar. Því hefur verið sendiherralaust frá því í ársbyrjun þegar Carol Van Voorst hélt á ný vestur um haf.

Fjallað var um málið í fréttum Ríkisútvarpsins í kvöld.

Fram kom að af ríflega 180 sendiherrastöðum víðs vegar um heim á Obama eftir að skipa í 22 störf. Auk Íslands er að sögn RÚV sendiherralaust í Aserbædjan, Hvíta-Rússlandi, Portúgal og Singapúr svo nokkur dæmi séu nefnd.

Samkvæmt heimildum Eyjunnar hefur það ekki gerst áður að svo langur tími líði frá því að bandarískur sendiherra fer úr landi og þar til skipað er í stöðuna.

Menn velta því fyrir sér hvort það spili inn í þessar tafir að Carol Van Voorst taldi sig hafa verið niðurlægða að Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands þegar hún mætti til opinberrar kveðjuathafnar á Bessastöðum í vor. Henni hafði skriflega verið tilkynnt um að hún yrði þar sæmd Fálkaorðunni, en á heimreiðinni á Bessastöðum var hringt í síma hennar frá forsetaskrifstofunni og tilkynnt að ekkert gæti orðið af því að hún fengi orðuna, en henni væri velkomið að þiggja veitingar hjá forsetanum.

Eyjan greindi frá málinu á sínum tíma.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar