Þriðjudagur - 3.11 2009 - 18:11 - Ummæli ()

Jóhanna vill útboð við endurskipulagningu stærri fyrirtækja

johanna-blmfundur.jpgJóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir gegnsæi mikilvægt svo trúnaður ríki um að fyrirtæki fái samræmda meðferð innan bankakerfisins.

Hún segir ekki sjálfgefið að sömu eigendur að komi að stjórn þeirra fyrirtækja sem bankar afskrifi lán hjá í stórum stíl.

„Mér finnst að í þeim tilvikum eigi að fara fram útboð, að minnsta kosti þegar um stærri fyrirtæki er að ræða,“ sagði Jóhanna á blaðamannafundi í morgun þegar rætt var um hugsanlegar milljarðaafskriftir.

Þau Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra undirstrikuðu á blaðamannafundinum að verið væri að endurskoða reglur fyrir fjármálamarkaðinn, sem meðal annars væri ætlað að koma í veg fyrir krosseignatengsl og misnotkun á markaði.

Nánar í frétt mbl.is af blaðamannafundi ráðherranna.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar