Leikdómur um Sindra silfurfisk í Þjóðleikhúsinu: Endurvinnsla fyrir börn
Áslaug Jónsdóttir hefur skrifað nýtt verk með nýjum persónum, utan um gamla fagra fiska þeirra Unu Collins, Bjarna Stefánssonar og Jóns Benediktssonar úr barnasýningunni á verki Odds Björnssonar, Krukkuborg, frá því herrans ári 1979.
Þeir sem sáu verk Áslaugar Gott kvöld í fyrra og glöddust eins og börn, hlakkaði ákaflega til að sjá ævintýrið um Sindra silfurfisk. Lítið ævintýri um „að það sé allt í lagi að vera öðruvísi en aðrir og mikilvægi þess að vera sáttur við sjálfan sig.“ Það er sögumaður, Hafdís í skrautfiskabúðinn, kona sem siglt hefur um höfin, Elva Ósk Ólafsdóttir, sem leiðir börnin inn í brúðuleikinn og fiskaævintýrið sem sprettur fram eins og teiknimynd í sjónvarpi á baksviði. Raddir af bandi tala fyrir alla syndandi litríku fallegu fiskana sem Sindri litli mætir á ferð sinni til þroska. En hátalara raddirnar tengjast ekki nógu vel hverjum fiski svo framvindan er ekki jafn skýr og ljós og hún þarf að vera fyrir börn. Þó þau séu náttúrulega ýmsu vön úr sjónvarpinu. Sagan er líka of stutt. Sögumaðurinn er heldur ekki í réttum tengslum við brúðuleikinn og texti hans ekki nógu leikrænn frá höfundar hendi. (Fastagestir í leikhúsinu hljóta samt að gleðjast óumræðanlega að fá að sjá framan í helstu leikkonu hússins þó ekki sé nema í nokkrar mínútur oní kjallara).
Textinn sjálfur og myndir verða áreiðanlega falleg barnabók en næst þegar Áslaug vinnur fyrir Þjóðleikhúsið á hún að taka sér meira pláss, krefjast betri skilyrða fyrir hugverk sín og börnin. Hér er verið að spara of mikið.
María Kristjánsdóttir
Frumsýning í Þjóðleikhúsinu, Kúlunni, laugardaginn 31.október kl.13.30. Höfundur: Áslaug Jónsdóttir. Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson. Brúðustjórnun: Aude Maina, Anne Busson, Karolina Boguslawa, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir. Brúðugerð:Bjarni Stefánsson, Erna Guðmarsdóttir, Jón Benediktsson, Stefán Jörgen Ágústsson, Una Collins. Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason. Leikari: Elva Ósk Ólafsdóttir.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
