eyjan.is

Mánudagur 09.11.2009 - 15:11 - Ummæli ()

Könnun: 67% telja íslenska stjórnsýslu spillta

spilling.jpgRúmlega tveir þriðju hlutar landsmanna telja spillingu í íslenskri stjórnsýslu vera mikla eða mjög mikla.

Þetta er niðurstaða í könnun sem Háskólinn á Bifröst gerði fyrir Borgarahreyfinguna.

Í tilkynningum samtakanna segir að árum saman hafi því verið haldið fram að Íslandi væri eitt óspilltasta land í heimi. Transparency International hafi reglulega framkvæmt mælingar á spillingu og samkvæmt aðferðum þeirra hafi Ísland verið til fyrirmyndar meðal annarra vestrænna ríkja.

Borgarahreyfingin segir að Bifröst hafi „að beiðni BH kannað viðhorf fólks til umfangs spillingar í stjórnsýslunni á Íslandi.“

Spurt hafi verið í símakönnun hversu mikil spillingin væri að mati viðkomandi. Úrtakið var 1.350 manns á landinu öllu og svarhlutfall 63,6%.  Í ljós kom að rúm 67% þeirra sem afstöðu tóku töldu spillingu í íslenskri stjórnsýslu vera mikla eða mjög mikla.

Sjá niðurstöður í PowerPoint skjali


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is