Mats Josefsson, ráðgjafi ríkisstjórnarinnar við endurreisn bankakerfisins, gagnrýndi seinagang stjórnvalda í ræðu að ráðstefnu Capacent Glacier sem nú stendur yfir á Grand Hótel. Sagði hann vanta pólitíska ákvörðunartöku og af þeim sökum tæki viðreisnin lengri tíma en ell.
„Svo virðist sem endurreisn efnahagslífisins sé ekki í forgrunni hjá stjórnvöldum þessa dagana,“ sagði Josefsson. „Skortur á pólitískri ákvörðunartöku er það sem helst stendur í vegi fyrir viðreisn íslensks efnahags um þessar mundir,“ er haft eftir Josefsson á mbl.is.
Hann gagnrýndi stjórnvöld fyrir seinagang og sagði viðreisnina ekki hafa tekið jafn langan tíma í öðrum löndum og í fyrri kreppum. Þá sagði hann stjórnvöld ekki hafa lært nægilega mikið af reynslu annarra þjóða.
Vantar samhæfðar aðgerðir og upplýsingar
„Meginveikleikinn í endurreisn stjórnvalda er að engin ein stofnun ber endanlega ábyrgð á því að ákvörðun sé tekin,“ sagði Josefsson. Nauðsynlegt sé að samhæfa aðgerðir, en til þess þurfi að koma á fót stofnun sem hefur yfirumsjón með endurreisninni. Til að auka traust á ferlinu þyrfti einnig að sjá til þess að ein stofnun beri ábyrgð á að koma upplýsingum til almennings og kröfuhafa.
Icesave niðurstaðan jákvæð en tók of mikinn tíma
Josefsson sagði þó að eitt og annað jákvætt mætti segja um aðgerðir stjórnvalda að undanförnu. Sem dæmi væri gott að svo virðist sem niðurstaða í Icesave málinu sé í sjónmáli. Það hafi dregist of mikið á langinn, og hafi grafið enn meira undan traust á íslensku efnahagslífi.
Kreppan hvergi dýrari en á Íslandi
Josefsson sagði jafnframt að kostnaðinn við kreppuna hér verði meiri en nokkur kreppa í öðru landi, jafnvel um 85% af landsframleiðslu, samkvæmt frétt Ríkisútvarpsins. Sagði hann Íslendinga ekki hafa lært nóg af kreppum annarra þjóða, en þar hefði gengið best þar sem endurreisn bankanna er ekki gerð að pólitísku bitbeini. Þá væri nauðsynlegt að upplýsa almenning og kröfuhafa um hvað væri að gerast.
