Miðvikudagur - 11.11 2009 - 12:49 - Ummæli ()

Nýtt lánshæfismat Moody’s á ríkissjóði jaðrar við ruslflokk. Horfur hafi þó batnað

moodys.jpgMatsfyrirtækið Moody’s lækkaði í dag lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir erlendar og innlendar skuldbindingar úr Baa1 í Baa3, í sama flokk og hin matsfyrirtæki, Fitch Rating, og Standard & Poor’s höfðu áður gert. Horfur í mati Moody’s eru nú sagðar stöðugar en voru áður neikvæðar.

Einkunnin Baa3 er sú lægsta sem telst fjárfestingarhæf og lækki lánshæfismatið um einn flokk í viðbót flokkast ríkistryggð skuldabréf sem „rusl“ bréf.

Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka, segir í samtali við mbl.is að það sé í sjálfu sér jákvætt að Moody’s skuli meta horfur hér stöðugar. Þetta sé það nýjasta sem komið hafi frá lánshæfismatsfyrirtækjunum og því spurning hvað hin geri í kjölfarið.

Hann segir að þar sem ríkissjóður sé ekki að sækja sér mikið fjármagn núna að þá skipti matið í sjálfu sér ekki miklu máli.

Í fréttatilkynningu Moody’s segir m.a. að útlit sé fyrir að kreppan hér á landi verði grynnri og styttri en í fyrstu var talið og að mikil auðlegð Íslands og efnahagslegur sveigjanleiki hafi náð að draga úr höggi banka- og gjaldmiðilskreppunnar.

Moody’s segir að hraði hagvaxtar næstu árin muni aðallega velta á fjárfestingu í útflutningsatvinnuvegunum þar sem að innlend eftirspurn verði veik. Mat Moody’s gerir ráð fyrir aukinni fjárfestingu í áliðnaði og öðrum orkufrekum iðnaði á árunum 2010-13 sem dragi úr atvinnuleysi og auki einkaneyslu. Þetta gæti þó breyst ef heimsmarkaðsverð á áli lækki niður í það sem það var í mars sl.

Matsfyrirtækið segir mikla skuldabyrði ríkissjóðs takmarka möguleikana á því að lánshæfiseinkunin batni í fyrirsjáanlegri framtíð.

Bent er á að heildarskuldir íslenska ríkisins verði 150% af landsframleiðslu á næsta ári og að nettóskuldirnar 100% af landsframleiðslu. Moody’s segir að á á næsta ári fari um 20% af tekjum ríkisins í vaxtagreiðslur. Meðaltalið í ríkjum með sama lánshæfismat og Ísland hjá Moody’s sé 9%. Gert er ráð fyrir að hlutfallið fari svo niður í 15% árið 2011.

Reiknað er með óvissu ástandi næstu 12-18 mánuði og sagt að veik króna komi í veg fyrir afnám gjaldeyrishafta. Nýlegar tilkynningar um endurreisn bankanna og samkomulag um Icesave ásamt aðhaldi í ríkisrekstri er talið nægilegt til að auka smám saman traust á gjaldmiðlinum.

Jafnframt segir að áhættan í tengslum við hugsanleg málaferli vegna neyðarlaganna sé  vegin inn i matið.

Fréttatilkynning Moody’s er birt á vef Seðlabanka Íslands.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar