Fimmtudagur - 12.11 2009 - 11:34 - Ummæli ()

Níu þúsund frankar fóru af korti KSÍ áður en fjármálastjórinn kom á Moulin Rouge

moulin-rouge.jpgSvissneskur blaðamaður sem skrifaði um réttarhöldin í máli Pálma Jónssonar, fjármálastjóra KSÍ, gegn framkvæmdastjóra nektarstaðarins Moulin Rouge í Zürich segir að Pálmi hafi verið í fylgd með einum manni til miðnættis, en eftir það var hann einn á ferð. Fréttablaðið í dag hefur þetta eftir blaðamanninum, Attila Szenogrady.

Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, sagðist í viðtali í Kastljósi á mánudag hafa verið í kvöldverði með Pálma fyrr um kvöldið en að leiðir þeirra hafi skilið fljótlega eftir það og hann haldið heim á hótelið. „Pálmi hélt áfram að skemmta sér og rataði í þessar ógöngur sem hann hefur ratað,“ sagði Geir.

Í frétt Szenogradys um málið í síðustu viku í netmiðlinum 20 minuten online segir að af þeim 67 þúsund frönkum sem teknir hafi verið af kreditkorti KSÍ þessa nótt, hafi níu þúsund frankar, eða ríflega milljón krónur á núverandi gengi, farið af kotinu áður en Pálmi kom á Moulin Rouge.

Einnig kemur fram að 30 þúsund frankar, nærri helmingurinn, hafi verið teknir af kortinu á rúmlega tveggja klukkustunda tímabili frá kl 4:30 til 6:40 og að þrjár rússneskar konur, Eva, Lora og Carmen, hafi verið í fylgd Pálma á milli nokkurra næturklúbba. Hann hafi keypt handa þeim hverja kampavínsflöskuna á fætur annarri.

Í fréttinni kemur einnig fram að framkvæmdastjórinn hafi verið sýknaður af ákærum Pálma en fengið skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir skjalafals og skattsvik, sem ekki hafi tengst kæru Pálma. Ennfremur kemur fram dómarinn neitaði kröfu saksóknarans um að  klúbbnum yrði lokað.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar