Innlent - föstudagur - 13.11 2009 - 11:20

Ingibjörg Sólrún ósátt við Icesave-samninga: Við semjum eins og sakamaður

isgskjareinn.jpgIngibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríksiráðherra, gagnrýnir Icesave-samninganefnd Íslands og segir að hún hafi ekki lagt nógu mikla áherslu á ábyrgð Breta og ábyrgð Evrópusambandsins í málinu. Hún segir að Íslendingar hafi gengið til samningaviðræðna eins og sakamaðurinn, en hins vegar séu bresk stjórnvöld laus allra mála.

Þessi ummæli lét Ingibjörg Sólrún falli í viðtali við Sölva Tryggvason. Þetta var í fyrsta skipti sem hún tjáði sig um málið, en orðrómur hefur verið á kreiki um að hún sé mjög ósammála þeirri stefnu sem ríkisstjórnin markaði í málinu

,,Núna þegar við erum að reyna að semja okkur í gegnum Icesave, þá finnst mér svolítið eins og við komum fram eins og hinn seki…..göngum til samningnanna eins og sakamaðurinn, en hins vegar séu bresk stjórnvöld laus allra mála, þau eru það auðvitað ekki.“ sagði Ingibjörg Sólrún.

Hún lagði áherslu á að Bretar hefðu algjörlega einhliða tekið ákvörðun um að tryggja innistæður í breskum bönkum að fullu án nokkurs samráðs. Þess vegna verði þeir að bera sína ábyrgð. Það gangi ekki að öll ábyrgðin lendi á Íslendingum. Ingibjörg kveðst vera þeirrar skoðunar að Íslendingar verði að semja sig út úr því að borga lágmarkstrygginguna, því að þar sé ekki hægt að víkjast undan ábyrgð, eins og sumir hafa haldið fram. Um það sem er umfram það, gegni hins vegar öðru máli.

,,Þau (bresk stjórnvöld) tóku þessa ákvörðun einhliða til þess að bjarga sjálfum sér…..og það er alls ekki sjálfgefið að þau telji sig eiga sama rétt í þrotabú Landsbankans í Bretlandi eins og Íslendingar, sem að tryggja innistæður í samræmi við evrópsk ákvæði,“ sagði hún.

Ingibjörg Sólrún sagði að sér findist að íslenska samninganefndin hafi ekki lagt nógu mikla áherslu á ábyrgð Breta og ábyrgð Evrópusambandsins. Við værum að vinna samkvæmt ,,directive“ frá Evrópusambandinu sem sé meingallað, sérstaklega þegar komi að alþjóðlegum bönkum.


Ekki eru leyfð ummæli við þessa frétt.