Enn er ekki komin endanleg mynd á fyrirhugaðar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar. Málið var rætt á fundi hennar í morgun.
Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV.
RÚV sagði að ljóst væri þó að þungar byrgðar mundu leggjast á almenning og fyrirtæki í landinu. Samtals líklega um 70 milljarðar. Meðal þess er nýr skattur á olíu og bensín.
Fram kom að Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hefði verið fámáll um skattaáform ríkisstjórnarinnar að fundi loknum. „Það var bara farið yfir það og síðan verður vinnunni haldið áfram, þetta svona styttist í land og við ætlum að reyna að láta þetta skýrast yfir helgina og fara svo aftur yfir þetta á fundi á þriðjudag,“ var haft eftir honum.
RÚV sagði að til stæði að ná um 50 milljörðum króna í ríkiskassann með hækkun á tekjusköttum einstaklinga. Sextán milljörðum ætti að ná með sköttum á fyrirtæki. Bæði ætti að hækka tryggingagjald og eins að setja nýja orku og auðlindaskatta. „Við erum eiginlega komin mjög langt í land með það held ég. Ég vonast til að það takist með sæmilegum friði við alla viðkomandi aðila. Það verður farin blönduð leið í þeim efnum“ sagði Steingrímur við RÚV.
Þá var upplýst að sérstakur skattur verður lagt að alla notkun jarðefnaeldsneytis, hvort sem um er að ræða svartolíu til skipa, flugvélabensín eða bensín og díselolíu á bíla. Sagt var að gjaldið ætti að verða hóflegt.
Þingflokkar stjórnarflokkanna hafa veitt Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími umboð til að útfæra skattahækkanirnar.
