Þjóðfundur í Laugardalshöll í allan dag: 1500 manns marka gildi og framtíðarsýn þjóðarinnar. Myndir
Þjóðfundur um íslenskt þjóðfélag, endurmat þeirra grundvallargilda sem samfélagið er reist á og skýrari framtíðarsýn, er haldinn í Laugardalshöll í dag. Til fundarins er stefnt marktæku úrtaki íslensku þjóðarinnar, allt að 1500 manns, en fundurinn stendur frá klukkan 9 til 17 í dag. Helstu niðurstöður þjóðfundar, um gildi og framtíðarsýn Íslendinga, er að vænta strax í kvöld eða á morgun.
Að sögn aðstandenda er fundurinn ekki hefðbundinn framsögu- eða umræðufundur í ætt við pólitíska fundi eða þá borgarafundi sem haldnir hafa verið á undanförnum mánuðum. Þess í stað verður þátttakendum skipt niður í hópa sem starfa saman allan fundartímann. Umræðustjórar tryggja samræmi í aðferðafræði og árangursríkar umræður.
Helstu viðfangsefni á Þjóðfundi eru ”Hvaða lífsgildi eiga að vera okkur leiðarljós í þróun samfélagsins?” og umræða um meginstoðir samfélagsins, eins og velferðar- og menntakerfi, atvinnuskapandi umhverfi, regluverk o.fl. og með hvaða hætti hægt er að endurmóta þær í samræmi við þau lífsgildi lögð hafa verið til grundvallar.
Vonast er til að afurð fundarins verði framtíðarsýn byggð á skýrum sameiginlegum grunngildum. Að auki eru skilgreindar áherslur, markmið og verkefni sem nauðsynleg eru til þess að tryggja skilvirkan farveg fyrir þær breytingar og aðgerðir sem ráðast þarf í. Fundurinn markar upphaf þess að móta nýtt líkan sem bregst við áðurnefndum kaflaskilum í þróun samfélagsins. Í kjölfar hans verður ráðist í markvissar aðgerðir sem byggjast á niðurstöðum hans. Fundurinn mun einnig kalla fram áframhaldandi umræðu sem miðar að því að þróa niðurstöðurnar áfram til heilla fyrir land og þjóð.
Vonast er til að í kjölfar Þjóðfundar verði honum fylgt eftir með því að virkja gerjunina og kraftinn sem er að finna um allt samfélagið nú þegar, að tryggja flæði milli fortíðar, nútíðar og framtíðar þannig að eðlilegt tenging sé milli þess sem var með uppgjöri við fortíðina og þess sem verður út frá nýju upphafi. Horft verði til lengri tíma án þess að gleyma því að skammtímasjónarmið eru mikilvæg til þess að fást við yfirstandandi erfiðleika. Að skapa öflugar tengingar milli meginstoða samfélagsins svo sem stofnana, fyrirtækja, hagsmunahópa, stjórnmálaafla og fagaðila, og sameina þannig krafta ólíkra aðila. Síðast en ekki síst er mikilvægt að tryggja eftirfylgni og framkvæmd ákvarðana, en þetta næst fram með því að þeir sem bera formlega ábyrgð á einstökum sviðum samfélagsins sameinist um að styðja verkefnið og tryggja nauðsynlegum aðgerðum brautargengi. Þarna er átt við aðila einsog alþingi, ríkisstjórn, hagsmunasamtök og fleiri, segir frá aðstandendum Þjóðfundar.







Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
